Vonsvikin og reið vegna áfrýjunar

Jonas Aarseth Henriksen var þrítugur þegar hann var skotinn tveimur skotum í bakið við sumarbústað í Nes í Ådal 17. ágúst 2023 eftir fjölda skemmdarverka á eigum hans og líkamsárása á hann sjálfan. Lögregla aðhafðist ekkert í málinu þrátt fyrir að Henriksen leitaði ítrekað til hennar og viðurkenndi það í yfirlýsingu í febrúar í fyrra. Mál tveggja af fjórum dæmdu er nú á leið fyrir Hæstarétt Noregs vegna þess sem verjendur þeirra telja alvarleg mistök Lögmannsréttar Borgarþings. Ljósmynd/Úr einkasafni

Áfrýjunarnefnd Hæstaréttar Noregs hefur úrskurðað að áfrýjun í máli Jonasar Aarseth Henriksen heitins frá millistigsdómstólnum Lögmannsrétti Borgarþings, hvað málsmeðferðina snertir, skuli tekið fyrir æðsta dómstól landsins.

Ítarlega hefur verið fjallað um mál Henriksens hér á mbl.is, þrítugs manns sem skotinn var til bana í Nes í Ådal í Buskerud-fylki 17. ágúst 2023 vegna afbrýðisemi Kristoffers Ørpen Sundt sem hlaut nítján ára dóm fyrir lögmannsrétti sem þyngdi fjórtán ára dóm héraðsdóms verulega.

Dómar þriggja af fjórum ákærðu voru þyngdir fyrir lögmannsrétti, aðeins einn þeirra hlaut vægari dóm, en til samans voru dómarnir þyngdir úr 35 og hálfu ári í 44 ár og átta mánuði.

Um málsatvik og dóma vísast til fyrri umfjöllunar mbl.is, en það voru tveir af fjórum dæmdu sem áfrýjuðu til Hæstaréttar. Telja verjendur þeirra að mistök hafi verið gerð við málsmeðferðina fyrir lögmannsrétti.

Niðurstaða byggð á atriðum sem aldrei komu fram

Er það álit verjendanna að Lögmannsréttur Borgarþings hafi byggt niðurstöðu sína á atriðum sem aldrei komu fram við aðalmeðferð málsins í dómsal og rétturinn hafi því ályktað ranglega að um manndráp að yfirlögðu ráði hafi verið að ræða þrátt fyrir eindregna neitun dæmdu sem segja að aldrei hafi staðið til að myrða Henriksen.

Jon Anders Hasle verjandi Sundt segir í viðtali við staðarblaðið Ringerikes Blad að ákæruvaldið hafi viðurkennt ákveðna handvömm sína og meira að segja Vibeke Gjøslien héraðssaksóknari, sem flutt hefur málið fyrir hönd ákæruvaldsins ásamt Mari Gjersøe, fallist á að ákveðin atriði málsins séu röng.

Ágreiningurinn, þegar munnlegur málflutningur fer fram fyrir Hæstarétti, mun snúast um hvort þessi mistök hafi verið svo alvarleg að þau hafi haft áhrif á sjálfa niðurstöðu dómsins. Á norska lögfræðivefnum Rett24 hefur þeirrar spurningar verið spurt hvort í raun sé farið fram á að Hæstiréttur endurskoði sönnunarmat lögmannsréttar, en Hæstiréttur hefur almennt ekki heimild til að endurmeta sönnunargögn máls nema um alvarlega annmarka á málsmeðferð eða rökstuðningi neðri dómstiga sé að ræða.

Löng saga um ofsóknir

Verjendur beggja áfrýjenda eru þeirrar skoðunar að vegna staðreyndavillna við aðalmeðferð málsins hafi lögmannsréttur ranglega komist að þeirri niðurstöðu að dæmdu hafi lagt á ráðin um að myrða Henriksen við sumarbústaðinn í Nes fyrir réttum þremur árum og þremur mánuðum í gær.

Áfrýjendur, og verjendur þeirra, halda því fram að það sem varð að manndrápi með köldu blóði hafi aðeins átt að vera svokallað ofbeldisverkefni, voldsoppdrag á norsku. Fjórmenningarnir hafi aðeins ætlað að hræða fórnarlamb sitt, en „verkefnið“ farið úr böndunum. Daufheyrðust dómendur við mótbárunni, enda sagan um ofsóknir á hendur Henriksen orðin löng áður en hann var myrtur og hefur lögregla umdæmisins viðurkennt það í yfirlýsingu að hún hafi algjörlega brugðist eftir að Henriksen leitaði ítrekað til hennar.

„Nefndin heimilar að áfrýjunin nái fram að ganga hvað málsmeðferð snertir. Nefndin bendir jafnframt á að framgangur áfrýjunarkröfunnar [mun óhjákvæmilega] hafa áhrif á einkaréttarkröfurnar [kröfur aðstandenda Henriksens um skaðabætur],“ segir í úrskurði áfrýjunarnefndar Hæstaréttar.

Við lok málsmeðferðar fyrir Hæstarétti er tvennt til:

Dómur Lögmannsréttar Borgarþings stendur óhaggaður eða málinu verður vísað þangað á nýjan leik til nýrrar dómsmeðferðar telji Hæstiréttur að um mistök við málsmeðferð hafi verið að ræða.

„Þetta er erfiður dagur fyrir okkur,“ segir Ivar Borgen stjúpfaðir Henriksens við norska ríkisútvarpið NRK. Fjölskylda hins myrta er allt annað en sátt við að Hæstiréttur fjalli um málið eftir refsiþyngingar fyrir lögmannsrétti sem aðstandendur gátu sætt sig við.

„Við erum vonsvikin og reið. Jonas var myrtur á hrottafenginn hátt og við óttumst um réttlætið og að þeir sem bera ábyrgð fái ekki þá refsingu sem þeir eiga skilið. Við þurfum áfram að lifa í óvissu,“ segir Borgen við ríkisútvarpið, enda gæti ný meðferð málsins fyrir lögmannsrétti tekið drjúga stund.

„Það er ómannúðlegt fyrir fjölskyldu að þola svona lagað í svo langan tíma. Okkur aðstandendum Jonasar finnst við vera algjörlega réttlaus á meðan allt snýst um að vernda þá sem eltu uppi, pöntuðu dráp á og myrtu Jonas okkar,“ segir hann enn fremur.

Óljóst er, enn sem komið er, hvenær Hæstiréttur Noregs tekur áfrýjunarmálið fyrir.

NRK

NRK-II („andstyggilegt að vera hérna“)

Aftenposten

TV2

Ringerikes Blad

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab