Icelandair og flugvirkjar undirrita kjarasamning
Innlent | mbl | 18.11.2026 | 18:53
Icelandair og Flugvirkjafélag Íslands undirrituðu í dag nýjan kjarasamning milli félaganna.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair sem send hefur verið í kauphöllina.
Samningurinn gildir frá 1. janúar á þessu ári og til 1. september 2028.
Flugvirkjafélag Íslands mun leggja samninginn fyrir félagsmenn sína í atkvæðagreiðslu og er búist við því að niðurstaða hennar muni liggja fyrir þann 1. desember.
Icelandair hefur átt í kjaraviðræðum við flugvirkja til lengri tíma en flugvirkjar fóru í verkfall í september sem stóð yfir í 11 klukkustundir.
Kjaraviðræður Icelandair við Félag íslenskra atvinnuflugmanna og Flugfreyjufélag Íslands standa enn yfir.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗