Dólgurinn í jólaflugi Icelandair sakfelldur – Braut flugsætið sitt og hótaði flugfreyju lífláti
Íslendingur um sextugt, sem búsettur er í Bandaríkjunum, var sakfelldur í Héraðsdómi Reykjaness nýlega fyrir líflátshótun við flugfreyju og brot gegn lögum um loftferðir, vegna atvika sem áttu sér stað um borð í flugi Icelandair frá Baltimore til Keflavíkur í 27. desember árið 2023.
Maðurinn var farþegi á fyrsta farrými í flugvélinni ásamt eiginkonu sinni. Þegar um þrjár klukkustundir voru liðnar af fluginu fór hann að verða órólegur, standa upp og ýta ítrekað á þjónustubjöllur. Flugverjar lýstu því að hann hefði drukkið mikið, orðið æstur og hreytt fúkyrðum í áhöfnina.
Yfirflugfreyjan tók ákvörðun um að hætta að veita honum áfengi. Hann brást illa við því, öskraði á hana og reyndi að slá til hennar. Eiginkona hans kom í veg fyrir höggið. Áhöfnin reyndi að róa hann niður og hafði samband við flugstjóra vegna hegðunar hans.
Sjá einnig: Meintur flugdólgur segir farþega hafa ráðist á sig – „Ég hélt hann ætlaði að nauðga mér“
Eiginkonu mannsins var boðið að færa sig í annað flugsæti, sem hún náði. Eiginmaður flugfreyju í áhöfninni var beðinn um að vera til taks en er hann ætlaði að setjast við hlið ákærða réðst sá síðarnefndi á hann. Eiginmaðurinn og aðrir viðstaddir yfirbuguðu þá ákærða, settu hann í handjárn og bundu hann niður í sæti hans.
Ákærði var áfram mjög æstur eftir að hann hafði verið fjötraður. Hann öskraði, blótaði, kastaði sér til í sætinu og braut að lokum sætið. Flugverjar og farþegar skiptust á að fylgjast með honum og reyna að róa hann. Hann kvartaði einnig undan öndunarerfiðleikum og fékk súrefni.
Líflátshótun og ágreiningur um líkamsárás
Flugfreyja sagði að þegar hún stóð yfir ákærða eftir að hann hafði verið bundinn niður hefði hann horft beint í augun á henni og sagt að hann ætlaði að fletta henni upp, finna hana, koma heim til hennar og drepa hana. Hún sagði hótunina hafa vakið henni ótta og vanlíðan. Hún leitaði til sálfræðings í kjölfarið og átti erfitt með að mæta aftur til vinnu án þess að finna fyrir kvíða.
Framburður flugfreyjunnar um líflátshótunina fékk stuðning frá fleiri vitnum og dómari taldi hana hafna yfir vafa. Ákærði neitaði því að hafa hótað flugfreyjunni eða sparkað í hana. Hann sagði að öndunarerfiðleikar vegna Covid-sýkingar hefðu gert hann ringlaðan og æstan. Hann lýsti því að farþegi hefði ráðist á hann og skellt honum niður í gólf, hann hefði orðið hræddur og talið að maðurinn ætlaði að nauðga sér. Hann sagði að afleiðingar meints ofbeldis hefðu verið alvarlegar og að hann hefði þurft að gangast undir aðgerð þar sem 41 sentimetri af ristli var fjarlægður.
Dómurinn taldi sannað að ákærði hefði hótað flugfreyju lífláti. Framburður hennar var stöðugur og fékk stuðning frá öðrum vitnum. Hótunin var talin til þess fallin að vekja ótta um líf, heilbrigði og velferð hennar. Ekki þótti hins vegar nægilega sannað að hann hefði sparkað í sköflung flugfreyjunnar. Framburður vitna var ekki nægilega samhljóða um það. Dómurinn taldi því ekki fullnægt sönnunarkröfum til sakfellingar fyrir líkamsárás.
Ákærði var sakfelldur fyrir líflátshótun samkvæmt 233. gr. almennra hegningarlaga og brot gegn lögum um loftferðir með því að fara ekki að fyrirmælum flugverja um góða hegðun og reglu um borð.
Refsing hans var ákveðin 45 daga fangelsi, en skilorðsbundið í tvö ár. Hann þarf jafnframt að greiða flugfreyjunni sem hann hótaði 500.000 krónur í miskabætur.
Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness þann 12. nóvember síðastliðinn.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗