Dómstjóri nýtti undanþáguheimild til að hlífa manni sem sótti sér barnaníðsefni við birtingu dóms

Kveikur fjallaði nýlega um vefsíðu sem kallast Kidflix sem hafði að geyma yfir 90 þúsund myndir og myndskeið sem sýndu gróft kynferðisofbeldi gegn börnum. Tveir Íslendingar voru meðal notenda síðunnar. Mál annars þeirra er enn til rannsóknar en hitt málið hefur verið til lykta leitt fyrir dómstólum.

Dómurinn hefur þó ekki verið birtur og neitaði Héraðsdómur Reykjavíkur að afhenda Kveik eintak dóms þrátt fyrir að dómstólasýslan hafi nýverið komist að þeirri niðurstöðu að dómurum sé skylt að verða við beiðnum blaðamanna um eintak dóma í sakamálum. Einnig neitaði dómurinn að afhenda dóminn nafnhreinsaðan og án persónugreinanlegra upplýsinga. Frá þessu greinir RÚV í dag. 

Dómstjóri vísaði til undanþáguheimildar á grundvelli sérstakra aðstæðna, en í þessu máli þætti það of þungbært fyrir ákærða að birta dóminn og væri það umfram það sem almennt megi búast við. Upplýst var þó að maðurinn var dæmdur fyrir að hafa í vörslum sínum 53 ljósmyndir og sjö myndbönd sem sýndu börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Maðurinn játaði og var dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab