Ísland upp FIFA-listann

Ísland vann öruggan sigur á Lúxemborg og Búlgaríu.

Íslenska karlalandsliðið í fótbolta fer upp um þrjú sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem birtur var í dag. Ísland færist úr 73. sæti í það sjötugasta.

Liðið lauk síðasta landsleikjaglugga ársins með tveimur öruggum sigrum í C-deild Þjóðadeildar UEFA.

Fyrst vann Ísland Búlgaríu 5:0 á útivelli og síðan Lúxemborg 3:0 á Laugardalsvelli á mánudag.

Ísland vann þar með riðil sinn með fjórtán stig eftir sex leiki og leikur í B-deild í næstu Þjóðadeild. Liðið fór taplaust í gegnum keppnina, vann fjóra leiki og gerði tvö jafntefli.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab