Missti stjórn á Ferrari-bíl á 110 kílómetra hraða
Robert Sánchez, markvörður knattspyrnuliðs Chelsea, slapp ómeiddur eftir að hafa klesst Ferrari-bíl á Nürburgring-brautinni í Þýskalandi í landsleikjahléinu, samkvæmt frétt The Sun.
Spánverjinn, sem er 28 ára, missti stjórn á Ferrari 488 Challenge Evo þegar hann ók inn í Caracciola-Karussell-beygjuna á um 110 km/klst. hraða. Bíllinn skall á vegriði og skemmdist mikið að framan.
Sánchez er að láni hjá Como í ítölsku A-deildinni á tímabilinu frá úrvalsdeildarfélaginu Chelsea.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗