Deilir jólahefðum fjölskyldunnar

Lance Bass á Emmy-verðlaununum í september. Á aðventunni finnst honum fátt skemmtilegra en að fara í bíltúr með börnunum og skoða jólaljósin. AFP/Monica Schipper

Lance Bass, söngvari úr strákasveitinni NSYNC, hefur gaman af því að skoða jólaljósin með börnunum sínum á aðventunni. Hann og eiginmaður hans, Michael Turchin, eiga fimm ára tvíburana Alexander James og Violet Betty.

„Fyrir utan að skreyta heima finnst okkur skemmtilegast að setjast upp í bíl og keyra um hverfi ríka fólksins til að skoða allt jólaskrautið,“ sagði Bass í samtali við Page Six áður en hann stýrði tendrun jólatrésins við verslunarmiðstöðina The Grove í Los Angeles á dögunum.

Í bílnum hækka þau vel í jólatónlistinni. Meðal uppáhaldslaga tvíburanna er „Merry Christmas, Happy Holidays“, sem NSYNC gaf út árið 1998. Bass segir börnin heyra lagið hvert sem þau fara, hvort sem er í matvörubúðinni eða í lyftunni.

Heima fyrir reynir fjölskyldan að horfa saman á eina jólamynd á hverju kvöldi. Í uppáhaldi hjá Bass eru A Christmas Story, National Lampoon’s Christmas Vacation og Elf.

Lance Bass og eiginmaður hans, Michael Turchin, ásamt tvíburunum Alexander James og Violet Betty árið 2021. Fjölskyldan reynir að horfa saman á jólamynd á hverju kvöldi á aðventunni. Skjáskot/Instagram

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab