Þrír kærðir fyrir símanotkun undir stýri

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu kærði þrjá ökumenn fyrir notkun farsíma undir stýri í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þrír ökumenn voru í dag kærðir fyrir að nota farsíma við akstur. 

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Lögreglustöðin á Hverfisgötu, sem hefur Austurbæ, Miðbæ, Vesturbæ og Seltjarnarnes í sinni umsjá, sektaði ökumennina þrjá. Því má leiða að því líkum að þeir hafi verið á ferð í þeim hluta höfuðborgarsvæðisins.

Sekt fyrir hélaðar rúður

Afskipti voru höfð af öðrum ökumanni sem var með svo hélaðar rúður á bifreið sinni að lögreglan taldi þær takmarka verulega útsýni hans við aksturinn.

„Sá má búast við sekt.“

Þar voru lögreglumenn þess umdæmis sem vaktar Kópavog og Breiðholt á ferðinni.

Tveir bílar fjarlægðir með krana

Einnig var tilkynnt um umferðaróhapp í hverfi 110 þar sem tvær bifreiðar voru fjarlægðar af vettvangi með kranabíl. Engin slys urðu þó á fólki.

Einn ökumaður gerðist uppvís af því að aka undir áhrifum fíkniefna og var stöðvaður af lögreglumönnum sama lögregluumdæmis. 

Annar ökumaður var stöðvaður og eftir nánari eftirgrennslan kom í ljós að hann hafði verið sviptur ökuréttindum og því próflaus.

Málin voru afgreidd samkvæmt venju að sögn lögreglunnar.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab