Heimir reiður þegar hann las fréttirnar í gær - „Mér finnst að sambandið eigi að skammast sín“
Heimir Karlsson, þáttastjórnandi í Bítinu á Bylgjunni, gagnrýndi Knattspyrnusamband Íslands (KSÍ) harðlega í þættinum í morgun vegna framkomu sambandsins í garð Jóhanns Bergs Guðmundssonar. Hann segir Íslendinga almennt ekki nógu duglega að þakka þeim sem hafa unnið mikil afrek fyrir þjóðina.
Jóhann Berg greindi frá því í hlaðvarpinu Sjöunni í gær að enginn frá KSÍ hefði haft samband við sig persónulega eftir að hann lagði skóna á hilluna í síðasta mánuði.
Jóhann, sem lék 102 A-landsleiki fyrir Ísland, gagnrýndi einnig hvernig sambandið stóð að heiðrun EM-landsliðsins frá 2016 og kveðjustund Arons Einars Gunnarssonar.
Meira:
Jóhann Berg sendir væna sneið í Laugardalinn:Enginn tekið upp símann - „Skrýtin vinnubrögð“
Heimir tók heilshugar undir gagnrýni Jóhanns í Bítinu í morgun.
„Jóhann Berg sendir KSÍ smá skeyti, ég skil hann bara mjög vel. Mér finnst þetta loða við Íslendinga, við erum léleg að þakka fyrir þá sem hafa rutt braut eða staðið sig vel fyrir okkur,“ sagði Heimir.
Hann var afar ósáttur við að Jóhann hefði ekki fengið persónulega kveðju frá sambandinu eftir sinn glæsilega feril.
„Mér finnst þetta mjög skrýtið, mér finnst þetta ferlega lélegt. Skömm á KSÍ.“
Heimir benti á hversu stórt hlutverk Jóhann Berg hefði leikið í velgengni íslenska landsliðsins undanfarinn áratug.
„Hann lék 102 landsleiki, þú þarft kannski ekki að kveðja mann sem spilar þrjá leiki. Hann var frábær fyrir okkur, hann var ein af aðalástæðum þess að við komumst á EM og HM.“
Að mati Heimis er málið ekki einsdæmi heldur endurspegli það viðhorf KSÍ til sögu íslenskrar knattspyrnu.
„Þetta er ekki í fyrsta og eina skiptið að KSÍ sýnir að það hefur engan sérstakan áhuga á sögunni í kringum knattspyrnuna," sagði Heimir í Bítinu og Lilja Katrín sem stýrir þættinum með honum sagði að þarna talaði hann frá eigin reynslu.
„Ekki bara mín persónulega heldur líka fyrir hönd annarra, mér finnst að sambandið eigi að skammast sín,“ sagði Heimir í Bítinu á Bylgjunni.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗