Segir Viðreisn taka harðar á Ingvari en Jóni Gnarr
Tónn þingmanna Viðreisnar gagnvart Ingvari Þóroddssyni í kjölfar þess að hann gekk í Sjálfstæðisflokkinn er miklu harðari en gagnvart Jóni Gnarr er hann yfirgaf þingflokkinn fyrir um mánuði síðan.
Þetta segir Árni Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í Dagmálum Morgunblaðsins er vistaskipti Ingvars voru rædd.
Árni segir alltaf gott að fá góða og öfluga menn til liðs við þingflokk Sjálfstæðisflokksins. Ákvörðun Ingvars hafi þó ekki komið honum á óvart enda hafi verið ljóst að Ingvar væri ósáttur við margt í áherslum flokks síns.
Viðreisn í vandræðum
Ljóst er að mati Árna að þingflokkur Viðreisnar taki harðar á ákvörðun Ingvars heldur en ákvörðun Jóns Gnarr.
„Þegar Jón Gnarr fór fyrir mánuði síðan þá kom hver forystumaðurinn fram á fætur öðrum til að taka utan um Jón og lýsa hans miklu mannkostum og hvað hann væri einstakur. Það er annar tónn í garð Ingvars og harðari, sem kann að skýrast af því að hann tekur skrefið alla leið og fer í annan flokk á meðan Jón gerði samstarfssamning við þingflokk Viðreisnar.“
Árni telur brotthvarf Jóns og Ingvars vera ákveðinn mælir á stöðuna innan Viðreisnar. Flokkurinn sé í vandræðum og fleiri séu jafnvel að hugsa sér til hreyfings.
Kraumandi óánægja á landsbyggðinni
Viðreisn fékk í fyrsta sinn í sögu sinni kjörna þingmenn í öllum kjördæmum í Alþingiskosningunum fyrir tveimur árum. Ákvörðun Ingvars, sem er úr Norðausturkjördæmi, virðist litast af miklu leyti af því að landsbyggðinni og þá sérstaklega sínu kjördæmi hafi ekki verið sinnt nægilega af ríkisstjórninni.
„Eins og hann tilgreinir þá er ákvörðun um að fresta Fjarðarheiðargöngum, það er ákvörðun um að hækka virðisaukaskatt á baðlón og það er kílómetragjaldið og þessar mörgu smáálögur. Ríkisstjórnin hefur ekki skilað þeim efnahagslega árangri sem þau lofuðu,“ segir Árni.
Árni segir kraumandi óánægju víða á landsbyggðinni með stefnu ríkisstjórnarinnar.
„Við þekkjum það í landsbyggðarkjördæmunum að þar er nálægðin meiri heldur en hér. Þingmennirnir þekkja til á hverjum stað og eiga persónuleg samskipti við marga í kjördæmunum og þar lætur fólk í sér heyra og gleymir því ekki sem var sagt fyrir síðustu kosningar.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗