Brúðkaupsferð Zidane sögð á enda – Leikmenn fá harða gagnrýni
Franskir fjölmiðlar hafa gagnrýnt nokkra leikmenn franska landsliðsins harðlega eftir misjafna frammistöðu í síðustu tveimur leikjum liðsins undir stjórn Zinedine Zidane.
Frakkland tapaði 3-1 gegn Ítalíu á San Siro áður en liðið hafði betur gegn Tyrklandi, 2-1, í Þjóðadeildinni.
RMC Sport beindi sérstaklega spjótum sínum að Malo Gusto, varnarmanni Chelsea, sem átti erfiðan leik gegn Ítölum.
Blaðamaðurinn Alexandre Jaquin sagði Gusto líklega hafa valdið mestum vonbrigðum í þessum landsleikjaglugga og lýsti frammistöðu hans á San Siro sem martröð.
Bradley Barcola, kantmaður Liverpool, fékk einnig gagnrýni fyrir að nýta færin illa og skorta nákvæmni í sóknarleiknum. Þá þótti Adrien Truffert, leikmaður Bournemouth, ekki standa undir væntingum.
Gagnrýnin beinist einnig að Zidane sjálfum.
„Zidane rakst á vegg raunveruleikans í þessum landsleikjaglugga,“ sagði Walid Acherchour, sérfræðingur hjá RMC.
„Brúðkaupsferðin er á enda,“ bætti hann við.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗