Íslendingarnir létu vita af sér

Tryggvi Garðar Jónsson átti góðan leik.

Tryggvi Garðar Jónsson átti góðan leik. Ljósmynd/Viking

Tryggvi Garðar Jónsson var markahæstur hjá Viking með átta mörk þegar liðið tapaði fyrir Sandefjord, 31:28, á heimavelli í norsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Sigurjón Guðmundsson átti góðan leik í marki Sandefjord og varði tólf skot þegar liðið vann sinn sjötta sigur á tímabilinu.

Sandefjord er með tólf stig eftir níu leiki og fer upp í fimmta sæti með sigrinum. Viking er í tíunda sæti með átta stig eftir jafnmarga leiki.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab