Íslendingarnir létu vita af sér
Tryggvi Garðar Jónsson var markahæstur hjá Viking með átta mörk þegar liðið tapaði fyrir Sandefjord, 31:28, á heimavelli í norsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.
Sigurjón Guðmundsson átti góðan leik í marki Sandefjord og varði tólf skot þegar liðið vann sinn sjötta sigur á tímabilinu.
Sandefjord er með tólf stig eftir níu leiki og fer upp í fimmta sæti með sigrinum. Viking er í tíunda sæti með átta stig eftir jafnmarga leiki.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/32/1693262.jpg)