Vilja ítarlega greiningu á kostnaði við hælisleitendur
Nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins leggja til að ríkisstjórninni verði falið að vinna ítarlega greiningu á opinberum kostnaði árin 2016–2025 vegna umsækjenda um alþjóðlega vernd og þjónustu sem tengist þeim.
Þetta kemur fram í þingsályktunartillögu en Árni Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er fyrsti flutningsmaður hennar. Sex aðrir sjálfstæðismenn eru jafnframt flutningsmenn hennar.
Í greiningu vilja sjálfstæðismennirnir meðal annars að kostnaður við heilbrigðis-, sálfræði- og tannlæknaþjónustu komi fram auk kostnaðar við skólagöngu og aðra þjónustu sveitarfélaga.
Þrýstingur á opinbera þjónustu
Í greinargerð með tillögunni segir að umsóknum um alþjóðlega vernd hafi fjölgað mjög frá árinu 2016. Þá hafi umsóknir verið 354 en í fyrra hafi þær verið 1.749 og 4.516 árið 2022.
„Aukinn fjöldi umsókna hefur í för með sér aukinn kostnað. Jafn mikill fjöldi umsókna og raun ber vitni hefur í för með sér ákveðinn þrýsting á ýmiss konar opinbera þjónustu og úrræði. Mikilvægt er að greina áhrif þessarar þróunar og tryggja að allir angar hennar séu skoðaðir,“ segir í greinargerðinni.
Meðan á málsmeðferðartíma stendur á umsækjandi rétt á þjónustu sem ríkið ber kostnað af. Einnig ber ríkið húsnæðiskostnað og kostnað við uppihald.
Þingmönnunum er ekki kunnugt um að ráðist hafi verið í greiningu á kostnaðinum. Mikilvægt sé því að ráðist verði í þá vinnu að taka þessar upplýsingar saman til að unnt sé að fá fyllri mynd af kostnaði við málaflokkinn.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗