Myndskeið: Vice City lifnar við á ný

Eftir 13 ára bið er Grand Theft Auto VI loksins að koma út og eftirvæntingin meðal tölvuleikjaunnenda um allan heim er gríðarleg. 

Í meðfylgjandi myndskeiði frá AFP er fjallað um útgáfuna víða um heim.

„Þetta er eitt af stóru málunum núna, sérstaklega í mínu lífi. Ég hef spilað GTA svo lengi að eftirvæntingin er bara klikkuð. Ég mun pottþétt sitja og bíða eftir að leikurinn komi út og byrja strax að spila,“ segir Riley Fennel, ástralskur nemandi á ferð í Tókýó.

Í Miami í Bandaríkjunum, borginni sem er fyrirmynd hinnar skálduðu Vice City þar sem leikurinn gerist, hefur útgáfunni verið fagnað með tilþrifum. Risastórar veggmyndir, auglýsingaskilti og skreytingar tengdar leiknum hafa birst víða um borgina.

„Þetta er klikkað. Ég ólst upp í þessari borg og elska Miami. Að sjá einn af uppáhaldsleikjunum mínum gerast á staðnum þar sem ég ólst upp er mjög sérstakt,“ segir Yarixza Hernandez.

Á Nýja-Sjálandi voru spilarar meðal þeirra fyrstu í heiminum sem fengu að prófa leikinn þegar hann kom út á miðnætti að staðartíma.

Luke Starik hafði beðið eftir þessari stund í 13 ár.

„Ég hef beðið síðan síðasti leikurinn kom út. Nú þegar við erum komin aftur til Vice City er ég virkilega spenntur.“

Fyrsta tilraunin gekk þó ekki alveg samkvæmt áætlun.

„Dauður strax? Í fyrsta skipti? Ég lifði ekki lengi. Jedúddamía.“

Í Miami í Flórída hefur leiknum verið beðið með meiri eftirvæntingu en annarsstaðar. LJósmynd/AFP

Þakið á Kaseya Center í Miami er rækilega merkt leiknum.

Þakið á Kaseya Center í Miami er rækilega merkt leiknum. AFP

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab