Aldrei verið ákært í slíku máli
Ferðasaga mannsins og stúlkunnar vakti athygli tollvarða á Keflavíkurflugvelli. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Sex erlendir ríkisborgarar eru með réttarstöðu sakbornings vegna rannsóknar lögreglunnar á meintu mansali og nauðungarhjónabandi 15 ára stúlku, fæddri 2009, sem kom til landsins í nóvember 2024 í fylgd með manni sem hún hafði verið gefin í hjónaband með.
Þetta segir Alda Hrönn Jóhannsdóttir, aðalsaksóknari hjá lögreglunni á Suðurnesjum, í samtali við mbl.is.
Einstaklingarnir sex eru allir frá sama landinu og þekkjast innbyrðis. Allir eru þeir grunaðir um mansal en karlmaður á þrítugsaldri sem konan var gefin í hjónaband með er einnig grunaður um kynferðisbrot.
Ákvörðun um ákæru ekki væntanleg strax
Eftir að stúlkan kom hingað til lands greindi hún lögreglu frá því að foreldrar hennar hefðu gefið hana manninum í hjónaband samkvæmt hefðum þeirra. Stúlkan lýsti því að hún hefði klæðst hvítum brúðarkjól við athöfnina og farið með manninum á efri hæð húss þar sem hann hefði haft við hana kynmök á meðan aðstandendur biðu á neðri hæðinni.
Rannsókn á málinu er langt á veg komin að sögn Öldu Hrannar en rannsóknin er þó umfangsmikil og hefur teygt sig til nokkurra Evrópulanda. Eitthvað er í það að ákvörðun verði tekin um ákæru í málinu.
„Það er oft flókið að rannsaka svona mál þar sem aðilar vilja ekki afskipti lögreglu,“ segir Alda Hrönn.
Mál sem þessi koma einstaka sinnum upp að sögn Öldu Hrannar en hún segir þó að ákæra hafi aldrei verið gefin út í sambærilegu máli.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗