Miklar gleðifréttir fyrir Liverpool

Giovanni Leoni er að snúa til baka.

Giovanni Leoni er að snúa til baka. Ljósmynd/Liverpool

Varnarmenn knattspyrnuliðs Liverpool, Conor Bradley og Giovanni Leoni, eru byrjaðir að æfa aftur með liðinu eftir langvarandi meiðsli, samkvæmt The Athletic.

Norðurírski hægri bakvörðurinn Bradley, 23 ára, þurfti að gangast undir aðgerð eftir að hafa hlotið bein- og liðbandaskemmdir á vinstra hné í leik gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í janúar.

Ítalski miðvörðurinn Leoni, 19 ára, sleit fremra krossband í fyrsta leik sínum fyrir Liverpool, gegn Southampton í deildabikarnum í september 2025.

Hvorugur þeirra er tilbúinn að snúa aftur í keppnisleiki, en búist er við að þeir þurfi nokkurra vikna æfingar áður en þeir verði klárir í slaginn.

Framherjinn Hugo Ekitike er nú eini leikmaður Liverpool sem er frá vegna langvarandi meiðsla og stefnir hann á að snúa aftur í desember eftir að hafa slitið hásin.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab