Mata hættur eftir glæsilegan feril - Mun starfa í Ástralíu

Juan Mata, fyrrum leikmaður Manchester United og Chelsea, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna, 38 ára gamall.

Spánverjinn tilkynnti um ákvörðunina á samfélagsmiðlum fyrr í dag. „Stundum þarf maður að sleppa takinu á því sem maður elskar. Takk fyrir allt, fótbolti,“ skrifaði hann.

Mata lék með Chelsea frá 2011 til 2014 og Manchester United frá 2014 til 2022. Hann vann meðal annars Meistaradeildina með Chelsea og Evrópudeildina með báðum félögum. Þá varð hann heimsmeistari með Spáni árið 2010 og Evrópumeistari 2012.

Mata lék síðast með Melbourne Victory í Ástralíu og var valinn besti leikmaður deildarinnar á síðustu leiktíð. Hann er nú hluthafi í félaginu og mun áfram starfa fyrir það.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab