Líffræðingur gagnrýnir harðlega skýrslu um umhverfisáhrif umdeilds vindorkuvers - Lykilsvæði fyrir fálka sé undir og styrkur stofnsins ofmetinn

Þó nokkrar athugasemdir hafa verið lagðar fram við skýrslu um mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðs vindorkuvers á Hnotasteini á Hólaheiði í Núpasveit. Umrætt svæði er suður af Melrakkasléttu, um 12 kílómetra suðaustur af Kópaskeri, og tilheyrir sveitarfélaginu Norðurþingi. Líffræðingur sem rannsakað hefur fuglalífið á svæðinu í mörg ár gagnrýnir harðlega þann hluta skýrslunnar sem snýr að áhrifum vindorkuversins á fuglana á áhrifasvæði versins. Hann bendir m.a. á að Melrakkaslétta sé mjög mikilvæg fyrir varp fálka og segir að stofnstærð hans sé ofmetin í skýrslunni. Líffræðingurinn vill einnig meina að í skýrslunni skorti mat á áhrifum vindorkuversins á fálkastofninn á Norðausturlandi.

Fyrirtækið Qair Ísland stendur fyrir áformunum um vindorkuverið. Skýrslan er unninn af ráðgjafafyrirtækinu Cowi sem er með höfuðstöðvar í Danmörku en útibú á Íslandi. 

Qair Ísland segir á heimasíðu sinni að það sé hluti af Qair Group en á heimasíðu þess kemur fram að um sé að ræða samsteypu fyrirtækja sem sérhæfi sig í endurnýjanlegri orku. Qair Group er með höfuðstöðvar í Frakklandi og samkvæmt heimasíðu þess með starfsemi í Evrópu, Afríku, Suður-Ameríku og Asíu. Ekki finnast upplýsingar um eigendur á heimasíðu Qair Group en í fyrirtækjaskrá Skattsins er að finna fyrirtækin Qair Ísland ehf. og Qair Ísland H2 ehf. Það er væntanlega fyrrnefnda fyrirtækið sem stendur fyrir áformunum um vindorkuverið á Hólaheiði. Samkvæmt fyrirtækjaskrá er stjórnarformaður þess Ásgeir Margeirsson sem er margreyndur í orkugeiranum og var meðal annars áður forstjóri HS Orku. Raunverulegur eigandi Qair Ísland ehf. er hins vegar franskur ríkisborgari á sjötugsaldri en hann heitir Jean-Marc Bouchet en hann er stofnandi Qair Group.

Myllur  

Um vindorkuverið segir, í kynningu í skipulagsgátt, að gert sé ráð fyrir að reistar verði 30 vindmyllur, sem gefi hver um 7,2 megavött af orku og að uppsett afl verði um 216 megavött. Hæð þeirra miðað við spaða í efstu stöðu verði 200 metrar. Undirstöður vindmyllanna verði um 30 metrar í þvermál og kranaplan við hverja vindmyllu um 2.100 fermetrar að stærð. Lagðir verði um 18,5 kílómetrar af nýjum vegum á framkvæmdasvæðinu og allar vindmyllurnar verði tengdar saman með jarðstrengjum innan framkvæmdasvæðisins sem verði plægðir niður og staðsettir eins og kostur er í vegstæðum. Þá verði reist um 5.000 fermetra safnstöð raforku innan framkvæmdasvæðisins.

Lagðar hafa verið fram um 20 athugasemdir við umhverfismatsskýrsluna. Sumar þeirra koma frá íbúum í nágrenninu sem gagnrýna bæði skýrsluna og fyrirhugað vindorkuver frá ýmsum hliðum.

Meðal þeirra er Aðalsteinn Örn Snæþórsson íbúi í Norðurþingi en hann er líffræðingur og hefur starfað við fuglarannsóknir síðustu 20 ár. Hann gagnrýnir skýrsluna harðlega og segir meðal annars að hún sé ólæsileg, illskiljanleg og heimildanotkun sé ábótavant Aðferðafræði fuglarannsókna sé slök, sem leiði til verulegs vanmats á áætluðu áflugi fugla á vindmyllurnar. Niðurstaða skýrslunnar horfi einnig á alvarlegan hátt fram hjá slæmri stöðu tveggja tegunda, skúms og fálka.

Fálki

Fálkinn hefur löngum verið talinn einn af krúnudjásnum íslensks fuglalífs og er einn af þjóðartáknum Íslands.

Aðalsteinn minnir í athugasemd sinni á að á válista Náttúrufræðistofnunar sé fálki skilgreindur í hættu en í skýrslunni sagður í nokkurri hættu. Þar sé hins vegar miðað við válista frá 2018 og í skýrslunni fái fálkinn aðeins verndargildið „í meðallagi“. Stofninn sé aftur á móti lítill, talinn 300–400 pör, og hafi hrunið á síðustu árum. samkvæmt fréttatilkynningu frá Náttúrufræðistofnun. Varpstofn á Norðausturlandi hafi minnkað um 45 prósen frá 2019–2024 og 2024 verið sá minnsti frá upphafi vöktunar 1981. Vetrarfuglatalningar sýni 57 prósent fækkun 2020–2023 og eBird-skráningar 78 prósent fækkun 2020–2024. Fækkunin stafi af auknum afföllum, ekki lakari viðkomu, og virðist mest meðal ungfugla.

Aðalsteinn minnir á að Melrakkaslétta sé lykilsvæði fyrir fálka. Þar hafi verið 14 óðul árið 2016, um 2,2 prósent af landsstofni.

Hann segir skýrsluna staðfesta að fálkapar verpi 5–10 kílómetrum norðan við rannsóknarsvæðið, sé á óðali allt árið og veiði rjúpu um allt rannsóknarsvæðið. Samt séu áætluð afföll aðeins 0,7 fuglar á 10 árum. Skýringin sé sú að 80 prósent flugs fálka hafi verið undir 30 metra hæð og því sleppt úr líkaninu. Missir annars fullorðna fuglsins geti kostað óðalið varp.

Segir sömuleiðis í athugasemd Aðalsteins að sumarið 2026 hafi verið sett GPS-tæki á sjö fálkaunga og sé það í fyrsta sinn sem slíkt sé gert hér á landi. Niðurstöðurnar sýni mikilvægi Melrakkasléttu fyrir þá þótt þeir hafi klakist út í nágrenni Mývatns. Það veki upp spurningar um áhættu fyrir fálkaunga sem klekjist úr eggjum nær fyrirhuguðu vindorkuveri svo sem á Melrakkasléttu og í Jökulsárgljúfrum þar sem fálkavarp sé einnig þétt. Ungfálkar séu einmitt sá aldurshópur sem fækkað hafi mest, og þeir séu óreyndir á flugi. Skýrslan meti næmi fálka fyrir árekstri „miðlungs“ með vísan til þess að engin dauðsföll séu skráð í gagnagrunni. Sá gagnagrunnur sé aðallega með upplýsingum frá Þýskalandi, langt utan útbreiðslusvæðis fálka, og í sömu töflu komi fram að 41 „tígulfálki“ hafi drepist sem sýni að skyldar tegundir af fálkaætt drepist við vindmyllur.

Kröfur

Segir Aðalsteinn að lokum, í þeim hluta athugasemda hans sem snýr að fálkum, að gera verði kröfu um að verndargildi fálka verði endurskoðað í ljósi breyttrar válistastöðu og nýjustu vöktunargagna, áhrif verði metin miðað við stofninn á Norðausturlandi og sérstaklega ungfugla, og notkun fálkaunga frá nágrenni fyrirhugaðs vindorkuvers verði skoðuð nákvæmlega með því að nýta GPS-tækni.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab