Segir frá svefnherbergisvenju sinni þegar eiginmaðurinn er að heiman
Fyrirsætan og matargyðjan Chrissy Teigen (40) hefur opinberað hvað er það fyrsta sem hún gerir í svefnherberginu þegar eiginmaður hennar, tónlistarmaðurinn John Legend, er „fjarri góðu gamni“.
Fjögurra barna móðirin deildi leyniánægju (e.Guilty Pleasure) sinni sem hún leyfir sér seint um kvöld, en aðeins við sérstök tækifæri, nánar tiltekið þegar betri helmingurinn er ekki heima.
„Ég er algjör hryllings- og blóðbaðs-nörd,“ sagði hún í samtali við E! News. „Þegar ég kemst loksins ein upp í rúm, til dæmis ef John er farinn eitthvað, þá set ég Saw-þríleikinn á. Ég elska þetta. Hryllingur gerir mig einfaldlega hamingjusama.“
Hún var sérstaklega hrifin af frammistöðu Demi Moore í myndinni The Substance og bætti við: „Að sjá þennan sálfræðitrylli með henni? Vá, hann var svo góður. Virkilega góður!“
Teigen var greinilega heilluð þegar hún kom auga á Moore á rauða dreglinum í vikunni, á Baby2Baby Giving Tree Awards verðlaunahátíðinni.
Áhugi Teigen á öllu sem tengist hryllingi nær einnig til hrekkjavökunnar, en hún viðurkennir fúslega að móðurhlutverkið og það að hugsa um fjögur lítil börn á þessum tíma geti gert hverja móður algjörlega úrvinda.
„Ég er enn að jafna mig eftir hrekkjavökuna,“ viðurkenndi hún. „Fjögur börn, fjórar bekkjarveislur og svo ýmislegt annað? Þetta hefur verið ein allsherjar törn, skal ég segja þér.“
Hún segist þó ekki vilja skipta lífi sínu fyrir neitt annað. „Þau eru ótrúleg. Þetta eru bara fjórar litlar verur. Þetta hefur kennt mér að maður getur virkilega elskað, hjartað hefur rúm fyrir svo margar ólíkar verur.“
„Og eitt það besta sem þetta hefur kennt mér er að faðma ófullkomleikann. Þegar ég varð móðir í fyrsta sinn gátu smáóhöpp, eins og ef eitthvað helltist niður á teppið, gert mig alveg brjálaða. En ég hef lært að njóta þess að búa á heimili sem ber þess merki að þar sé búið, heimili sem er ekki fullkomið. Þannig fær maður börnin sín til að vera bara börn.“
Teigen og Legend hittust fyrst árið 2006 við tökur á tónlistarmyndbandi söngvarans við lagið Stereo, en þar lék fyrirsætan ástkonu hans. Þau náðu vel saman og eftir nokkurra ára samband trúlofuðu þau sig árið 2011. Þau gengu síðan í hjónaband við rómantíska athöfn við Como-vatn á Ítalíu í september 2013.
Saman eiga þau fjögur börn: dótturina Lunu, fædda í apríl 2016, soninn Miles, fæddan í maí 2018, dótturina Esti, fædda í janúar 2023, og soninn Wren, sem kom í heiminn með aðstoð staðgöngumóður í júní 2023.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗