United hótar lögsókn vegna yfirvofandi félagaskipta undrabarns
Manchester United íhugar að grípa til lögfræðilegra aðgerða vegna yfirvofandi félagaskipta JJ Gabriel, 16 ára gamals efnilegs kantmanns, til Real Madrid.
Samkvæmt Daily Mail eru forráðamenn United ósáttir við hvernig staðið hefur verið að málum og hyggjast grípa til allra tiltækra lagalegra úrræða komi í ljós að Gabriel hafi verið hvattur með ólögmætum hætti til að yfirgefa félagið.
Gabriel birti kveðjumyndband á samfélagsmiðlum á þriðjudagskvöld án þess að láta United vita. Félagið hefur jafnframt ekki náð sambandi við leikmanninn eða fjölskyldu hans þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Gabriel hefur æft í Madríd og standa viðræður yfir um félagaskipti hans til spænska stórliðsins í janúar.
Hann er samningsbundinn akademíu United út tímabilið og félagið telur að samþykki FIFA þurfi til að félagaskiptin gangi í gegn.
Gabriel hefur verið hjá United frá unga aldri og er talinn einn efnilegasti ungi leikmaður Evrópu.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗