Vefurinn kostaði 460 milljónir
Veðurstofa Íslands hefur varið tæplega 460 milljónum króna í þróun og uppbyggingu nýs vefs stofnunarinnar frá því að verkefnið hófst árið 2022. Þá er áætlað að árlegur kostnaður við rekstur og frekari þróun innviða tengdra vefnum verði á bilinu 50 til 70 milljónir króna.
Þetta kemur fram í skriflegu svari Veðurstofunnar við fyrirspurn mbl.is um kostnað við nýja vefinn og samning stofnunarinnar við upplýsingatæknifyrirtækið Origo.
Að sögn Veðurstofunnar nær fjárfestingin meðal annars til uppsetningar tækniumhverfis, hönnunar, forritunar og gerðar útboðsgagna.
Uppsöfnuð tækniskuld
Veðurstofan segir að samhliða þróun nýja vefsins hafi verið unnið markvisst að því að vinna upp „tækniskuld“ sem safnast hafi upp á löngum tíma.
Sú vinna hafi meðal annars falist í uppbyggingu nýrra bakendakerfa, flutningi gagna, endurskoðun öryggis- og rekstrarumhverfis og þróun nýrrar kortalausnar.
Stofnunin segir að með þessu hafi verið lagður traustur tæknilegur grunnur að frekari þróun þjónustunnar á næstu árum.
Upplýsa ekki um samningsfjárhæðina
Í fyrirspurninni var einnig óskað eftir upplýsingum um hvort ákveðin fjárhæð hefði verið tilgreind í samningi Veðurstofunnar við Origo og hvort endanlegur kostnaður hefði orðið annar en upphaflega var gert ráð fyrir.
Í svarinu kemur fram að samningur hafi verið gerður við Origo að loknu útboði á vegum Ríkiskaupa.
Veðurstofan segir að útboðið hafi snúist um val á samstarfsaðila með fjölbreytta tæknilega sérþekkingu og faglega getu til að sinna verkefninu, fremur en tilboð í fyrir fram skilgreinda verkþætti.
Ekki kemur hins vegar fram í svarinu hver samningsfjárhæðin við Origo var eða hversu stór hluti þeirra tæplega 460 milljóna króna sem varið hefur verið til verkefnisins rann til fyrirtækisins.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗