Uppnám í beinni: „Og hvað með það?“

Franceinfo hefur síðan viðurkennt að stöðin hefði átt að láta Mailfert vita fyrir fram. Ljósmynd/Colourbox

Pólitískt uppnám hefur orðið í Frakklandi eftir að útvarpsmaður tók fram í beinni útsendingu að gestur hans, kvenréttindakonan Anne-Cécile Mailfert, væri giftur næstæðsta stjórnanda franska ríkissjónvarpsins France Télévisions.

Þáttastjórnandinn lét ummælin falla rétt áður en Mailfert tók til máls á útvarpsstöðinni franceinfo í fyrradag. Stöðin segir að hann hafi fylgt nýjum viðmiðunarreglum um gagnsæi hjá opinberum fjölmiðlum sem eiga að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra.

„Og hvað með það?“ spurði Mailfert, sem var greinilega brugðið. Hún sagði ummælin „algjört hneyksli“ og sneri sér svo að blaðamanni sem einnig tók þátt í umræðunum. „Hver er maki þinn?“ spurði hún. Spurningin kom honum í opna skjöldu.

Franceinfo hefur síðan viðurkennt að stöðin hefði átt að láta Mailfert vita fyrir fram.

„Talar fyrir sjálfa sig“

Mailfert hefur fengið stuðning á samfélagsmiðlum, meðal annars frá Jean-Luc Mélenchon, forsetaframbjóðanda af róttæka vinstrivængnum, og Yaël Braun-Pivet, forseta franska þjóðþingsins.

„Kona hefur sínar eigin skoðanir, berst fyrir því sem henni er hugleikið og talar fyrir sjálfa sig. Þetta ætti að vera sjálfsagt árið 2026,“ sagði Braun-Pivet.

Heyra mátti Mailfert hrópa þegar hún rauk út úr hljóðverinu. „Það sem gerðist í gær særði mig djúpt,“ skrifaði hún á Instagram í gær.

Mailfert sagðist hafa starfssiðferði, gagnsæi og heilindi í hávegum. Reglur af þessu tagi ættu að hennar sögn að taka á raunverulegri og skýrt skilgreindri hættu á hagsmunaárekstrum. Þá þyrfti að upplýsa þá sem í hlut ættu.

Ríkissjónvarpið sætt gagnrýni úr báðum áttum

Yannick Letranchant, sem fer með siðferðis- og gagnsæismál hjá franceinfo, sagði að gæta þyrfti að því að krafa um gagnsæi leiddi ekki til þess að fólk væri fyrst og fremst skilgreint út frá því hver maki þess væri.

Í aðdraganda forsetakosninganna í Frakklandi á næsta ári hefur ysta hægrið ítrekað sakað France Télévisions um hlutdrægni í þágu vinstrimanna. Róttæki vinstrivængurinn undir forystu Mélenchons hefur einnig gagnrýnt ríkissjónvarpið.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab