Í skýjunum yfir endukomunni á Anfield
James Milner, fyrrverandi miðjumaður Liverpool, snýr aftur á Anfield í góðgerðarleik gegn goðsögnum Inter 27. mars á næsta ári.
Hinn fertugi Milner, sem lagði skóna á hilluna eftir síðasta tímabil, er fyrsti leikmaðurinn sem staðfest er að leiki með liði Liverpool í leiknum.
Hann lék 332 leiki á átta árum hjá félaginu og vann Meistaradeildina árið 2019 og ensku úrvalsdeildina árið 2020.
„Ég er í skýjunum yfir því að fá tækifæri til að klæðast rauðu treyjunni á ný og stíga aftur út á Anfield,“ sagði Milner við opinbera vefsíðu Liverpool.
Ágóðinn rennur til samfélagsstarfs LFC Foundation. Síðustu tíu goðsagnaleikir félagsins hafa safnað meira en 10 milljónum punda.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗