„Núllið stendur“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. mbl.is/Eyþór

„Núllið stendur,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra á Alþingi í dag þegar Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins, spurði hvernig ríkisstjórnin ætlaði að standa við markmið sitt um hallalaus fjárlög á næsta ári.

Stefán Vagn sagði nýja spá Seðlabanka Íslands benda til þess að hallinn yrði 16 til 17 milljarðar króna.

Þorgerður Katrín sagði viðbúið að fjármálaráðuneytið legði fram tillögu við aðra umræðu um fjárlagafrumvarpið til að bregðast við breyttum horfum um afkomu ríkissjóðs.

Hún sagði ennfremur að við gerð frumvarpsins hefði þegar verið tekið tillit til þess að efnahagshorfur kynnu að versna. Hún tilgreindi ekki í hverju tillaga ráðuneytisins gæti falist.

Segir hafa slaknað á aðhaldi í ríkisfjármálum

Í óundirbúnum fyrirspurnatíma sagði Stefán Vagn hagstjórn ríkisstjórnarinnar hafa valdið vonbrigðum. Verðbólga væri 5,9%, hagvöxtur lítill og atvinnuleysi hefði aukist. Mörg heimili ættu um sárt að binda vegna atvinnuleysis, hárra vaxta og verðbólgu.

Hann vitnaði í Þórarin G. Pétursson varaseðlabankastjóra, sem sagði á kynningarfundi Seðlabankans í morgun að útlit væri fyrir að slaknaði á aðhaldi í ríkisfjármálum á þessu ári.

Það væru vonbrigði og við bættist að álögur hefðu verið hækkaðar í ársbyrjun á óheppilegum tíma.

Stefán Vagn sagði jafnframt ríkisfjármálin ekki hafa stutt við peningastefnuna þegar á reyndi. Nú stefndi í 90 milljarða króna halla á ríkissjóði á þessu ári en í fjárlögum hefði verið gert ráð fyrir 28 milljarða halla.

Hann spurði hvaða breytingar ríkisstjórnin hygðist gera á frumvarpinu fyrir næsta ár til að ná markmiðinu um hallalausan rekstur.

Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins.

Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins. mbl.is/Karítas

Segir ríkisstofnunum hafa fækkað um 8%

Þorgerður Katrín sagði það þjóna almannahagsmunum að reka ríkissjóð með afgangi. Frumvarpið væri aðhaldssamt og fyrir hverja krónu sem ríkið aflaði í auknar tekjur sparaði það tvær.

Ríkisstjórnin hefði einfaldað regluverk og unnið að sameiningu stofnana. Ríkisstofnunum hefði þegar fækkað um 8% og stefndi í að fækkunin næmi alls 13 til 14%.

Stefán Vagn taldi ráðherrann ekki hafa svarað spurningunni. Stjórnarandstaðan hefði ítrekað varað við því í haust að áform um hallalaus fjárlög myndu ekki ganga eftir. Hann spurði á ný hvar ríkisstjórnin ætlaði að finna þá 17 milljarða króna sem að hans mati vantaði til að brúa bilið.

Í síðara svari sínu sagði Þorgerður Katrín spá Seðlabankans svartsýnni en þá fyrri en breytingarnar væru ekki miklar. Bankinn gerði ráð fyrir minni hagvexti en áður en fjárfesting í tilteknum útflutningsgreinum væri á móti meiri en búist hefði verið við.

Þorgerður Katrín sagði einnig bankann spá því að verðbólga minnkaði um helming á næsta ári. Í spánni væri gert ráð fyrir 1% framleiðsluslaka hvort ár um sig, 2027 og 2028.

Það ætti að stuðla að hraðari hjöðnun verðbólgu og aðhaldið í fjárlagafrumvarpinu myndi einnig styðja við þá þróun. Minni verðbólga kæmi heimilunum til góða og lækkaði fjármagnskostnað ríkisins.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab