Unglingssonur raunveruleikastjörnu ákærður fyrir nauðgun - Hafði áður verið ákærður fyrir sifjaspell og barnaníð

Hinn 15 ára gamli Kroy „KJ“ Biermann var handtekinn í ágúst og ákærður fyrir að hafa nauðgað vinkonu sinni með hrottalegum hætti. Hann hafði áður verið ákærður fyrir að misnota barnungan fjölskyldumeðlim.

KJ er sonur raunveruleikastjörnunnar Kim Zolciak og eiginmanns hennar, íþróttamannsins Kroy Biermann. Zolciak gerði garðinn frægan í þáttunum Real Housewifes of Atlanta. Meint brot munu hafa átt sér stað þann 23. apríl sl. KJ var í varðhaldi í rétt rúma viku en þá greiddu foreldrar hans rúmlega 25 milljón króna tryggingu til að hann fengi að ganga laus þar til mál hans verður tekið fyrir. KJ hefur þó verið meinað að eiga samskipti við önnur börn, þar með talið við systkini sín: Kash sem er 14 ára og tvíburana Kaiu Rose og Kane Ren sem eru 12 ára gamlar.

Lögmenn KJ freista þess nú að fá mál hans flutt úr almenna réttarkerfinu yfir í ungmennadómstól. Ákæruvaldið hefur þó mótmælt þeim tilraunum og hefur bent á að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem KJ er sakaður um glæpi, en hann var einnig sakaður um kynferðisbrot í apríl í fyrra og þá sakaður um nauðgun, sifjaspell og barnaníð. Telur ákæruvaldið að fyrra málið sé til marks um mynstur þar sem unglingurinn nýti persónuleg tengsl við þolendur glæpa sinna til að knýja fram kynferðislega undirgefni. Fyrra málinu lauk með því að KJ var gert að sækja meðferð við hegðun sinni, en ákæruvaldið telur ljóst að sú meðferð hafi ekki borið árangur. Þetta sýni að úrræði ungmennakerfisins hafi ekki borið árangur og því rétt að KJ svari fyrir brot sín í almennu réttarkerfi.

Af málinu má ráða að brotaþoli í fyrra málinu hafi verið fjölskyldumeðlimur sem þá var yngri en 12 ára. Systur hans, Kaia og Kane, voru 11 ára á síðasta ári.

Brotið í apríl á þessu ári mun hafa beinst að vinkonu KJ og átti sér stað í búningsklefa í ræktinni þar sem móðir stúlkunnar starfaði. KJ er sakaður um að hafa elt stúlkuna inn í búningsklefann og svo nauðgað henni með hrottalegum hætti.

People greinir frá. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab