SNL atriðið sem er að tröllríða netheimum: „Við munum tala um þetta atriði í áratugi“
Atriði úr bandarísku gamanþáttunum Saturday Night Live frá því um helgina fer nú eins og eldur í sinu um netheima og telja margir að þarna sé á ferðinni atriði sem muni snerta ófáar taugar í fólki, þá ekki einungis hláturtaugar.
Fyrir þá sem ekki þekkja til er Saturday Night Live, SNL, gamanþáttur sem hefur verið í gangi í hálfa öld og samanstendur af stuttum atriðum sem eru bundin saman af gestastjórnanda. Margir af frægustu gamanleikurum samtímans hafa byrjað ferilinn sinn í þáttunum. Í síðasta þætti, sem var sýndur síðastliðinn laugardag, sá grínistinn John Mulaney um gestastjórnun og sér hann um að hefja atriðið Sister, eða Systir, sem er grínauglýsing þar sem menn sem þurfa að hugsa um aldrað foreldri eru hvattir til að fá sér systur til að sjá um allt álagið sem því fylgir.
Hér má horfa á atriðið í heild sinni.
Sister https://t.co/9Jq9LLrL1t
— Saturday Night Live (@nbcsnl) November 15, 2026
Ádeilan er hárbeitt en þar kynnir Mulaney þessa frábæru lausn til að þurfa ekki að sinna öldruðu foreldri. „Systir er einhver sem sér um umönnun allan sólarhringinn alveg frítt, og hún er líka systir þín. Nú þarf ég ekkert að spá í að sjá um pabba því systir mín sér um það. Nú get ég farið aftur að sjá um mitt líf og allt sem ég vil gera.“
Fleiri eru kallaðir að borðinu, þar á meðal karl sem segir: „Ég elska mömmu mína meira en allt en það þýðir ekki að ég vilji hjálpa henni fara á klósettið. Systir mín vill það ekki heldur. En hún gerir það. Ég geri það ekki.“ Það þarf ekkert að gera til að fá hana til að sjá um foreldrið, bara senda skilaboð eins og „pabbi datt“ og hún sér um málið.
Svo til að reka ádeiluna alla leið heim þá er kallaður til læknir sem útskýrir þetta. „Mörg ár af innrætingu á kynbundinni mismunun hefur fengið systur þína til að halda að umönnun sé eitthvað sem hún á að gera en ekki þú. Þegar skilaboðin koma frá þér þá fer hún í gang. Það er það eina sem þú þarft að gera! Sjáumst í jarðaförinni!“
Atriði sem verður vitnað í lengi
Margir áhrifavaldar í netheimum hafa tjáð sig um atriðið.
„SNL fær oft miklar ákúrur, yfirleitt eitthvað sem þeir eiga skilið. En þetta atriði, við munum tala um þetta atriði í áratugi. Sjá allar athugasemdirnar þar sem segir: „Þetta er lífið mitt“ og „Ég er systirin“. Það er enginn tilviljun að þeir séu að koma með þetta rétt fyrir þakkagjörðarhátíðina,“ segir einn netverji en á þakkargjörðarhátíðinni, sem er á fimmtudaginn í næstu viku, hittast margar fjölskyldur saman í Bandaríkjunum.
Atriðið var einnig tekið fyrir í spjallþættinum vinsæla The View þar sem Whoopi Goldberg þáttastjórnandi velti upp hvort þetta væri alltaf svona, meðstjórnendur hennar voru á einu máli um að svo væri nema þegar makar væru enn inni í myndinni, var þá meðal annars nefnt að Jay Leno væri nú að hugsa um eiginkonu sína sem þjáist af Alzheimer. Var bent á að í Bandaríkjunum eru systur um 60 prósent þeirra sem sjá um ólaunaða umönnun.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗