Lögbannið tekur pokann sinn
Dómstóllinn taldi ekki sýnt fram á að viðskiptavinir gætu ruglast á pokum félaganna, enda væru þeir skýrt merktir með heiti hvors fyrirtækis. Mynd úr safni. Ljósmynd/Colourbox
Hæstiréttur sýknaði Papco í dag af kröfum Samhentra Kassagerðar og hafnaði því að staðfesta lögbann við framleiðslu og sölu á sorppokum merktum „STERKIR“.
Dómstóllinn taldi ekki sýnt fram á að viðskiptavinir gætu ruglast á pokum félaganna, enda væru þeir skýrt merktir með heiti hvors fyrirtækis.
Hæstiréttur sneri þar með við niðurstöðu Landsréttar frá júní í fyrra. Landsréttur hafði staðfest lögbannið á grundvelli þágildandi laga um viðskiptahætti og markaðssetningu.
Héraðsdómur hafði áður sýknað Papco. Samhentum var gert að greiða Papco samtals fjórar milljónir króna í málskostnað á dómstigunum þremur.
Verndin nær til merkisins í heild
Samhentir hafa um árabil selt sorppoka merkta „STERKUR“. Hæstiréttur taldi orðið lýsa eiginleikum pokanna og skorta sérkenni eitt og sér. Merki Samhentra, þar sem orðið birtist ásamt heiti félagsins og myndmerki, hefði þó næg sérkenni til að njóta vörumerkjaverndar. Sú vernd tæki til merkisins í heild.
Við mat á ruglingshættu skipti mestu að heiti Papco og Samhentra kæmu skýrt fram á pokunum. Líkindin með orðunum „STERKUR“ og „STERKIR“ vógu minna þar sem bæði orðin lýsa styrkleika pokanna. Rétturinn benti einnig á að leturgerðin væri algeng á umbúðum og að fleiri fyrirtæki framleiddu sorppoka af sömu stærð með merkingum í sömu litum.
Landsréttur taldi hættu á ruglingi
Landsréttur hafði komist að sömu niðurstöðu um að Papco hefði ekki brotið gegn vörumerkjarétti Samhentra. Hann taldi þó hættu á að villst yrði á merkingunum í skilningi þágildandi laga um viðskiptahætti og markaðssetningu og staðfesti lögbannið á þeim grundvelli.
Hæstiréttur taldi að vernd samkvæmt því ákvæði tæki að jafnaði aðeins til auðkenna sem uppfylltu lágmarkskröfur um sérkenni. Gögn málsins sýndu að mati réttarins ekki fram á að orðið „STERKUR“ hefði með notkun orðið svo þekkt meðal viðskiptavina að þeir tengdu það eitt og sér við tiltekinn framleiðanda.
Þegar merkingar pokanna voru metnar í heild taldi rétturinn heldur ekki sýnt fram á ruglingshættu samkvæmt ákvæðinu. Sambærilegt ákvæði er nú í markaðssetningarlögum.
Pantaði poka Samhentra en fékk poka frá Papco
Papco hafði um tíma selt poka Samhentra en hóf síðar sölu á eigin pokum merktum „STERKIR“. Í ágúst 2023 pantaði starfsmaður Samhentra poka í vefverslun Papco sem þar voru kynntir sem pokar Samhentra. Hann fékk í staðinn poka merkta Papco. Papco sagði að láðst hefði að uppfæra myndir í vefversluninni eftir að félagið hætti að selja poka Samhentra.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu lagði í október 2023 lögbann við framleiðslu, innflutningi, dreifingu og sölu Papco á pokunum. Samhentir höfðuðu í kjölfarið mál til að fá lögbannið staðfest og viðurkennt að Papco væri óheimilt að nota merkinguna með þessum hætti.
Hæstiréttur taldi að afhendingin í ágúst og fyrri endursala Papco á pokum Samhentra sýndu ekki fram á hættu á að viðskiptavinir rugluðust á merkingunum.
Samkvæmt dómnum hefur Papco merkt poka sína „TRAUSTIR“ eftir að lögbannið var lagt á.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗