Hagkerfið fær högg eftir verðbólgubaráttu
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri á fundinum í morgun. Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu og Karen Vignisdóttir, aðalhagfræðingur bankans, sjást nær á myndinni. mbl.is/Eyþór
Nýjasta spá Seðlabankans er ákveðið högg fyrir hagkerfið, hagvöxt í landinu og þar með áætlanir ríkissjóðs um hallalaus fjárlög. Hins vegar virðist spáin festa betur í sessi trú manna á að verðbólga muni ganga nokkuð hratt niður á næsta ári og að hægt verði að komast niður í 2,5% verðbólgumarkmið í byrjun árs 2028.
Í spá Seðlabankans er nú gert ráð fyrir að hagvöxtur þessa árs verði aðeins 1% í stað 1,4% sem spáð var í ágústspá bankans. Þá er gert ráð fyrir að hagvöxtur á næsta ári mælist aðeins 1,2%, en áður hafði því verið spáð að hann yrði 1,9%. Þetta þýðir að landsframleiðsla gæti á næsta ári orðið um 100 milljörðum minni en gert var ráð fyrir í síðustu spá bankans.
Út frá þessari nýju spá gerir bankinn ráð fyrir að halli ríkissjóðs samkvæmt boðuðum fjárlögum, verði um 0,3% af landsframleiðslu og muni nema um 16,5 milljörðum. Í frumvarpinu er hins vegar reiknað með afgangi upp á 0,1% af landsframleiðslu og munar þarna um 22 milljörðum í það heila.
Hefur fjármálaráðherra þegar brugðist við þessum fréttum og sagt að gripið verði til frekari aðgerða til að halda hallalausum fjárlögum. Segir hann breytinguna af þeirri stærðargráðu að slíkt sé fullkomlega raunhæft.
Spá nú auknu atvinnuleysi
Þá býst Seðlabankinn við því að atvinnuleysi samkvæmt vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar verði 6,2% á þessu ári í stað 5,9% og að á næsta ári verði það 5,6% í stað 5,2%.
Seðlabankinn spáir því jafnframt að vöxtur einkaneyslu verði 1,2% á þessu ári í stað 0,4% í síðustu spá. Á næsta ári miðar bankinn nú við 1,7% vöxt einkaneyslu í stað 2,2%. Er þetta ágætis vísbending um að bankinn telji landsmenn ætla að halda frekar að sér höndum en spáð hafði verið þegar kemur að almennri neyslu og útgjöldum.
Fjárfesting er þó talin munu aukast örlítið, eða úr 3,6% í 4% á þessu ári og úr 4,8% í 4,9% á næsta ári. Hins vegar kom fram á kynningarfundi peningastefnunefndar í morgun í máli Karenar Áslaugar Vignisdóttur, aðalhagfræðings bankans, að fjárfesting væri að stórum hluta keyrð áfram af gagnaverum.
Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu og Karen Vignisdóttir, aðalhagfræðingur bankans. mbl.is/Eyþór
Að festast í „evrópskri lognmollu“?
Allt eru þetta vísbendingar um að raunhagkerfið, þ.e. framleiðsla vöru og þjónustu og neysla verði fyrir meira höggi en spáð hafði verið og að lendingin, áður en hægt sé að lækka stýrivexti á ný, verði harðari en búist var við.
Á fundinum í morgun vakti Eggert Þröstur Þórarinsson, greinandi hjá Acro verðbréfum, athygli á þessu og sagði þjóðhagsspá bankans ekki góðar fréttir fyrir raunhagkerfið og gæfi fyrirheit um harðari lendingu en áður var spáð. Spurði hann bankastjóra hvort hann teldi Ísland vera að festast í „evrópskri lognmollu með litlum hagvexti, miklum halla hins opinbera o.s.frv.“ en hann vísaði til þess að spá bankans gerði í raun ekki ráð fyrir viðspyrnu fyrr en árið 2028 þegar spáð væri 2,5% hagvexti.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sagði að spá bankans gæfi frekari fyrirheit og trúverðugri um að verðbólgan færi að lækka á komandi ári og að aðstæður yrðu til staðar til að lækka stýrivexti.
Meiri áhætta í hraðri vaxtalækkun eða ofkældu hagkerfi?
Forsvarsmenn bankans voru á fundinum spurðir um það hvort þeir teldu meiri hættu felast í því að lækka vexti of snemma eða að hagkerfið myndi kælast um of.
Ásgeir sagði að undanfarið hefði krafturinn í hagkerfinu reynst meiri en bankinn hefði búist við. Sagði hann að innlend þróun og góð viðskiptakjör við útlönd bentu til þess að lendingin gæti orðið mýkri en annars. Meðal annars væri eftirspurn að utan eftir helstu útflutningsvörum okkar enn sterk.
Skuldir hjá fyrirtækjum en ekki almenningi
Ásgeir sagði að þó að hagvöxtur færi minnkandi væri rétt að hafa í huga að áfram væri gert ráð fyrir 1% hagvexti í ár. Sagði hann að frá sjónarhóli peningastefnunnar væri þetta nokkuð góð staða og vísaði til þess að verið væri að ná að kæla hagkerfið til að ná verðbólgu niður.
Hann sagði hins vegar liggja fyrir að kólnunin gæti verið hraðari og þá þyrfti að fylgjast vel með þróuninni á húsnæðis- og byggingarmarkaði. Heimilin væru þó ekki skuldug, „skuldirnar eru hjá fyrirtækjunum“. Tók hann þó fram að eftir um tvær vikur kæmi fjármálastöðugleikanefnd bankans saman og þar yrði líklega dýpra farið í húsnæðismarkaðinn.
Jafnvægið að færast til
Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu, sagðist almennt vera á þeirri skoðun að það væri meiri skaði af því að lækka vexti of hratt en of seint. Þannig gæti komið upp sú staða að verðbólga færi aftur af stað og þá þyrfti aftur að hefja vaxtahækkun til að ná niður verðbólgunni og að slíkt væri alltaf erfiðara í annað sinn.
Þórarinn tók hins vegar fram að að sínu mati væri jafnvægið í þessari jöfnu að færast meira yfir í að áhrifin væru að koma niður á raunhagkerfinu.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
