„Ekkert ríki í heiminum fer leið Miðflokksins“

Þorbjörg minnti Snorra á að Miðflokkurinn hefði ekki stutt stofnun brottfararstöðvar hér á landi. Hún sagðist geta treyst á stuðning stjórnarmeirihlutans þegar hún legði fram frumvörp um útlendingamál og sagði það eina helstu breytinguna frá tíð síðustu ríkisstjórnar. mbl.is/Karítas

„Ekkert ríki í heiminum fer leið Miðflokksins,“ sagði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra á Alþingi í dag þegar Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, spurði hvort íslensk stjórnvöld hygðust kanna þátttöku í áformum fimm Evrópuríkja um brottfararstöð í Rúanda.

Þorbjörg sagði það „grundvallarmisskilning“ hjá Snorra að ríkin fimm væru að fara þá leið sem Miðflokkurinn hefði lagt til. Danir myndu áfram afgreiða umsóknir um alþjóðlega vernd í Danmörku. Til flutnings til Rúanda kæmi fyrst að málsmeðferð lokinni.

Miðflokkurinn hefði hins vegar talað fyrir því að flytja sjálfa málsmeðferðina úr landi.

Spurði hvort afstaðan hefði verið rædd í ríkisstjórn

Í óundirbúnum fyrirspurnatíma vísaði Snorri til frétta af því að Austurríki, Danmörk, Holland, Þýskaland og Grikkland hygðust opna brottfararstöð í Rúanda árið 2027. Að sögn danska forsætisráðherrans væri markmiðið að ná betri stjórn á landamærunum, meðal annars með úrræðum sem hefðu fælingarmátt.

Snorri sagði áformin skref í þá átt sem Miðflokkurinn hefði lengi talað fyrir. Formaður flokksins hefði þegar árið 2022 lagt til að fleiri þættir í meðferð hælismála yrðu fluttir úr landi í áföngum. Flokkurinn hefði nú lagt fram þingmál sem miðaði að því að leggja hæliskerfið í núverandi mynd smám saman af.

Snorri sagði forsætisráðherra hafa slegið hugmyndina um þátttöku Íslands út af borðinu í viðtali við Ríkisútvarpið í gær. Hann spurði hvort sú ákvörðun hefði verið tekin í ríkisstjórn og hvort dómsmálaráðherra hefði skýrt fyrir forsætisráðherra hvers vegna þessi kostur væri óæskilegur. Aðstæður gætu breyst hratt og Ísland þyrfti að vera búið undir að umsóknum um vernd fjölgaði á ný.

Þorbjörg svaraði ekki beinlínis hvort málið hefði verið rætt í ríkisstjórn. Hún sagði íslensk stjórnvöld fylgjast með áformum ríkjanna fimm og benti á að Danmörk væri enn sem komið væri eina Norðurlandið sem ætti aðild að þeim.

Snorri sagði ríkisstjórnina hafa staðið illa að framkvæmd málsins og flestar viðvaranir Miðflokksins hefðu reynst á rökum reistar. mbl.is/Eyþór

Deildu um brottfararstöðina hér heima

Þorbjörg minnti Snorra á að Miðflokkurinn hefði ekki stutt stofnun brottfararstöðvar hér á landi. Hún sagðist geta treyst á stuðning stjórnarmeirihlutans þegar hún legði fram frumvörp um útlendingamál og sagði það eina helstu breytinguna frá tíð síðustu ríkisstjórnar.

Snorri svaraði því til að enginn þingmaður hefði greitt atkvæði gegn stofnun brottfararstöðvarinnar. Hann sagði ríkisstjórnina hafa staðið illa að framkvæmd málsins og flestar viðvaranir Miðflokksins hefðu reynst á rökum reistar.

Danir leituðu nú samstarfs um stöð í Rúanda vegna þess að brottfararstöðvar í Danmörku hefðu að þeirra mati ekki skilað tilætluðum árangri. Hann kallaði aftur eftir skýru svari um hvort íslensk stjórnvöld hygðust kanna sömu leið.

Í lokasvari sínu sagði Þorbjörg ríkisstjórnina vinna eftir skýrri stefnu í útlendingamálum. Hún gagnrýndi Snorra fyrir að sitja hjá við atkvæðagreiðslur um útlendingamál á Alþingi og tala síðan um verkleysi í hlaðvarpi sínu.

„Ég sé ekki alveg kraftinn og þungann í þeim aðgerðum.“

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab