Arion vísar á bug mati á tjóni upp á 10 til 14 milljarða
Hótelturninn við Skúlagötu 26. Arion banki segir enn óljóst hvað kostar að ljúka framkvæmdunum. Unnið sé að því að finna nýjan framkvæmdaaðila til að ljúka verkinu. mbl.is/Karítas
Arion banki metur möguleg fjárhagsleg áhrif hótelverkefnisins við Skúlagötu 26 á bankann langt undir þeim 10 til 14 milljörðum króna sem heimildarmenn Viðskiptablaðsins telja að tjónið á turninum geti numið. Þetta kemur fram í skriflegu svari bankans við fyrirspurn mbl.is.
Arion segir að bankinn hafi enn ekki talið tilefni til sérstakrar markaðstilkynningar vegna málsins og muni bregðast við ef það mat breytist.
„Þannig ætti það að blasa við að í dag metum við möguleg fjárhagsleg áhrif á bankann ekki í líkingu við það sem fram kemur í frétt Viðskiptablaðsins um mögulegt tjón af verkefninu.“
Viðskiptablaðið greindi frá því í gærkvöldi að samkvæmt heimildum þess hefði mygla fundist í allt að 190 af 214 herbergjum turnsins. Mat heimildarmanna blaðsins á tjóninu miðaðist við að fjarlægja gæti þurft herbergjaeiningarnar. mbl.is greindi frá þessu sama kvöld með vísan til fréttar blaðsins.
Leita að nýjum framkvæmdaaðila
Að sögn bankans liggur enn ekki fyrir hvað kostar að ljúka framkvæmdum við hótelið. Unnið sé að því að finna bestu leiðina til að skipta um skemmt efni, fá nýjan framkvæmdaaðila til að ljúka verkinu og tryggja áframhaldandi samstarf við rekstraraðila hótelsins.
„Með degi hverjum skýrist myndin og við erum bjartsýn á að þessu verkefni verði lokið með sóma.“
Eva Bryndís Helgadóttir skiptastjóri sagðist í samtali við Morgunblaðið í gær hallast að því að selja turninn eins og hann stendur. Þá gat hún ekki sagt hvað viðgerðir myndu kosta.
Framkvæmdir við turninn stöðvuðust 2. nóvember og verktakar voru sendir heim. Viku síðar voru bú sex félaga sem tengjast uppbyggingunni tekin til gjaldþrotaskipta. Eitt þeirra var S26 Hotel ehf., eigandi turnsins.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
