„Ég nenni ekki að lesa það sem þú nenntir ekki að skrifa“
Það var fjölmennt í Norræna húsinu mánudaginn 16. nóvember þegar Bandalag íslenskra listamanna hélt útgáfuhóf í tilefni af útgáfu nýrra tilmæla um ábyrga notkun gervigreindar og hleypti um leið formlega af stokkunum átakinu Stillum saman strengi, á Degi íslenskrar tungu.
Frú Halla Tómasdóttir forseti Íslands flutti erindi og Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra flutti erindi. Ævar Þór Benediktsson, rithöfundur og leikari, flutti beitta og bráðskemmtilega hugvekju svo eitthvað sé nefnt.
Að lokinni dagskrá gafst gestum kostur á að næla sér í eintak af nýútgefnum tilmælum BÍL um ábyrga notkun gervigreindar. Einnig voru í boði glæsilegir fjölnota pokar og límmiðar með listaverki eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur. Pokarnir ásamt límmiðunum vöktu mikla lukku og runnu út á svipstundu. „Ég nenni ekki að lesa það sem þú nenntir ekki að skrifa,“ stendur á pokunum sem Lóa Hlín teiknaði.
内容来自 Mbl.is - Smartland - Samkvæmislífið,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗













