Lagði fram falsað vottorð og sagður hafa veitt misvísandi upplýsingar en fær nýja málsmeðferð

Maður sem segist vera afganskur ríkisborgari og heita ákveðnu nafni hefur fengið því framgengt með kæru til kærunefndar útlendingamála að umsókn hans um ferðaskírteini fyrir flóttamenn verði tekin fyrir að nýju hjá Útlendingastofnun. Maðurinn hlaut árið 2022 alþjóðlega vernd hér á landi en áður en kom að því lagði hann fram gögn til að sanna deili á sér. Þar á meðal var kennivottorð en lögreglan á Suðurnesjum komst að þeirri niðurstöðu að vottorðið væri falsað. Útlendingastofnun sagði manninn hafa við umsóknina um ferðaskírteinið gefið misvísandi upplýsingar. Hann viðurkenndi einnig að hafa ferðast hingað til lands á fölsuðu vegabréfi.

Útlendingastofnun veitti manninum alþjóðlega vernd í júní 2022 en í ákvörðun stofnunarinnar þess efnis kom fram að maðurinn hafi við meðferð verndarmálsins lagt fram afganskt kennivottorð, frumrit af námskírteini og afrit af afgönsku ökuskírteini. Í september 2020 var kennivottorðið sent til áreiðanleikakönnunar hjá lögreglunni á Suðurnesjum og komst hún að þeirri niðurstöðu að það væri falsað. Með hliðsjón af niðurstöðum tungumála- og staðháttaprófs auk frásagnar mannsins var aftur á lagt til grundvallar að hann væri afganskur ríkisborgari, þó ekki yrði unnt að staðfesta auðkenni hans nánar.

Í janúar 2025 sótti maðurinn um ferðaskírteini fyrir flóttamenn. Útlendingastofnun fór fram á að hann legði fram gögn til að leiða líkum að auðkenni sínu. Maðurinn sagðist hins vegar ekki geta aflað opinberra gagna svo sem vegabréfs eða persónuskilríkja þar sem afgönsk sendiráð væru ekki virk í mörgum Evrópuríkjum, til dæmis í Noregi. Þá vísaði hann til þess að margir einstaklingar hafi verið í sömu stöðu og fengið umsókn sína um ferðaskírteini fyrir flóttamenn samþykkta. 

Fæðing

Útlendingastofnun fór fram á skýringar á að maðurinn hefði tilgreint annan fæðingarstað en hann hefði gert í umsókn sinni í Þýskalandi um alþjóðlega vernd. Sagðist maðurinn vera fæddur á þeim stað sem hann hefði tilgreint í umsókn sinni til Útlendingastofnunar en fjölskylda hans hafi skömmu eftir fæðingu hans flutt á þann stað sem tilgreindur væri í umsókn hans í Þýskalandi, taldi maðurinn að síðarnefndi staðurinn hefði verið skráður sem fæðingarstaður hans vegna misskilnings. Útlendingastofnun fór einnig fram á skýringar á því hvers vegna það kæmi fram í gögnum frá Þýskalandi að maðurinn sé þekktur þar undir öðru nafni og hafi haldið fram að hann væri danskur ríkisborgari. 

Sagðist maðurinn hafa sótt um hæli í Þýskalandi í nóvember 2015 undir sama nafni og fæðingardegi og hann lagði fram þegar hann sótti um vernd hér á landi. Hann sagðist hvorki hafa lagt fram gögn né haldið því fram að hafa verið danskur ríkisborgari. Þá taldi hann um misskilning að ræða sem stafaði mögulega af því að hann hafi fengið falsað danskt vegabréf frá smyglara sem hann hafi notað til að komast til Þýskalands og síðar til þess að ferðast frá Þýskalandi til Íslands. Hann jafnframt fengið fyrirmæli um að eyðileggja umrætt vegabréf við komu hans hér á landi, sem hann hafi og gert. Maðurinn sagðist ekki muna nafnið sem fram kom á vegabréfinu en myndi þó að það hafi verið danskt.

Umsókn mannsins um ferðaskírteini flóttamanns var loks hafnað á þeim grundvelli að hann hefði ekki sannað á sér deili með fullnægjandi hætti og engin gögn lægju fyrir sem sýndu fram á að honum væri ómögulegt að afla gagna um auðkenni sitt. Maðurinn óskaði eftir að hann fengi frest þar sem frumrit fæðingarvottorðs hans væri á leið til landsins í pósti en því var hafnað. Lagði hann þá fram kæru til kærunefndar útlendingamála.

Nýtt

Í niðurstöðu nefndarinnar segir að maðurinn hafi lagt fyrir nefndina það sem hann segi vera frumrit afgansks fæðingarvottorðs síns og afrit af sakarvottorði. Hér sé um ný gögn að ræða sem geti haft áhrif á niðurstöðu málsins og því sé nauðsynlegt að mál mannsins hljóti nýja meðferð hjá Útlendingastofnun þar sem lagt sé mat á hin nýju gögn.

Maðurinn hafi enn fremur óskað eftir endurupptöku málsins hjá Útlendingastofnun á grundvelli nýrra gagna en því verið hafnað og vísað til þess að ákvörðun lægi fyrir. Nefndin segir að samkvæmt stjórnsýslulögum hafi Útlendingastofnun borið að taka afstöðu til þess hvort erindi mannsins gæfi tilefni til endurupptöku málsins, enda verði beiðni um endurupptöku ekki hafnað á þeim grundvelli einum að ákvörðun hafi þegar verið tekin í málinu.

Ákvörðun Útlendingastofnunar, um að synja umsókn mannsins um ferðaskírteini flóttamanns, er því felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka mál mannsins fyrir að nýju.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab