Réttarhöldunum ekki frestað þó hann verði valinn í EM-hópinn

Helgi Fannar Sigurðsson

Miðvikudaginn 18. nóvember 2026 16:00

Ivan Toney. Mynd/Instagram

Ivan Toney, framherji Al-Ahli í Sádi-Arabíu og enska landsliðsins, hefur fengið synjun á beiðni um að fresta réttarhöldum sínum vegna mögulegrar þátttöku á EM 2028.

Toney er ákærður fyrir að hafa skallað og kýlt mann á skemmtistað í London þann 6. desember. Hann neitar sök en réttarhöldin eiga að hefjast 12. júní 2028, þremur dögum eftir að Evrópumótið hefst.

Lögmaður Toney óskaði eftir að réttarhöldunum yrði frestað fram í ágúst svo leikmaðurinn gæti tekið þátt í mótinu, yrði hann valinn í enska landsliðið.

Dómari hafnaði beiðninni og sagði hana byggða á getgátum. Hann tók þó fram að hægt væri að leggja fram nýja beiðni ef Toney yrði valinn í landsliðshópinn.

Toney, sem er þrítugur, lék með Englandi á HM síðasta sumar en var ekki valinn í nýjasta landsliðshópinn.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab