Ísland hlýtur háttvísisverðlaun UEFA
Ísland hefur hlotið háttvísisverðlaun UEFA, knattspyrnusambands Evrópu, fyrir keppnistímabilið 2025/26. Ísland varð efst allra aðildarþjóða í heildarmati sambandsins á háttvísi og framkomu í leikjum á vegum UEFA.
Háttvísimat UEFA nær til allra leikja í keppnum sambandsins, bæði hjá landsliðum og félagsliðum. Að þessu sinni voru metnir leikir frá 1. júlí 2025 til 30. júní 2026.
Til að koma til greina í heildarmatinu þurftu knattspyrnusamböndin að hafa tekið þátt í að minnsta kosti 50 leikjum á tímabilinu.
Heildarniðurstaða íslenskra landsliða og félagsliða í keppnum UEFA á tímabilinu er 8,533 stig.
Matið byggist ekki eingöngu á fjölda gulra og rauðra spjalda heldur er einnig litið til almennrar háttsemi og framkomu í tengslum við leikina.
Árangur Íslands er jafnframt töluverð bæting frá fyrra keppnistímabili. Einkunn landsins hækkaði um 0,263 stig milli ára, sem var næstmesta bæting allra aðildarþjóða. Aðeins Albanía bætti sig meira, eða um 0,286 stig.
UEFA veitir verðlaun í þremur flokkum. Ísland fékk verðlaunin fyrir besta heildarárangurinn, Albanía fyrir mestu bætinguna frá fyrra tímabili og Wales fyrir bestu framkomu stuðningsfólks. Wales hlaut 9,125 stig í þeim flokki.
KSÍ fær 50.000 evrur, sem samsvarar tæplega 7 milljónum króna, í verðlaunafé frá UEFA. Fjármununum skal verja til verkefna sem stuðla að aukinni háttvísi og virðingu innan knattspyrnunnar.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
