Ekkert drepur jólin

„Björgvin Franz er ísmeygilega andstyggilegur Trölli, á útopnu allan tímann, og axlar af krafti ábyrgð sína á að láta þessa skopparakringlu snúast," segir rýnir. Ljósmynd/Hörður Sveinsson

Sýning Borgarleikhússins á jólasöngleiknum upp úr barnasögu Dr. Seuss er enn einn vitnisburður um þau firnatök sem íslenskt atvinnuleikhús, ekki síst Borgarleikhúsið, hefur náð á söngleikjaflutningi. Á undanförnum árum hefur greinilega byggst upp þekking og reynsla sem tryggir gæði á öllum þáttum þessara viðamiklu og flóknu sýninga.

Frá umgjörð og tækni til leikstjórnar, þar sem umferðarstýring og virkjun útgeislunar leikhópsins eru í forgrunni, og yfir í færni þeirra sem á sviðinu standa í leik, söng og kannski öðru fremur dansi. Og kannski einkum og sér í lagi hjá yngstu þátttakendunum sem eru löngu hætt að þurfa nokkurn einasta kröfuafslátt. Og alltaf bætast ný í hópinn, jafn-flink og þau sem vaxa upp úr barnahlutverkunum.

Sól „geislaði í hlutverki Hverdísar“ og Björgvin Franz „er ísmeygilega andstyggilegur Trölli“, að mati rýnis. Ljósmynd/Hörður Sveinsson

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab