Íslensk vegabréf gangi kaupum og sölum

Þjóðskrá grunar að vegabréf hafi verið seld á svörtum markaði.

Þjóðskrá grunar að vegabréf hafi verið seld á svörtum markaði. mbl.is/Golli

Þjóðskrá telur líkur á því að íslensk vegabréf hafi gengið kaupum og sölum.

Tilvik eru um að einstaklingar hafi ítrekað tilkynnt um glötuð vegabréf og er talið að það tengist grun þess efnis að vegabréfin séu seld áfram. Þetta kemur fram í greinargerð með stjórnarfrumvarpi um breytingar á lögum um vegabréf sem nýlega var lagt fram á Alþingi.

Í frumvarpinu er lagt til að Þjóðskrá Íslands verði heimilt að gefa út nýtt vegabréf með sama lokagildistíma og vegabréf sem hefur glatast. Breytingunni er ætlað að draga úr hættu á misnotkun íslenskra vegabréfa.

Alþjóðleg glæpastarfsemi

Í greinargerðinni er jafnframt vísað til skýrslu evrópsku lögreglustofnunarinnar Europol frá árinu 2021 um skipulagða og alvarlega glæpastarfsemi.

Þar kemur fram að fölsuð skilríki, breytt skilríki eða raunveruleg skilríki sem aflað hefur verið með sviksamlegum hætti geti auðveldað ýmiss konar alvarlega brotastarfsemi yfir landamæri, meðal annars mansal, smygl á fólki og fíkniefnasmygl.

Í greinargerðinni er þetta nefnt til rökstuðnings fyrir því að Þjóðskrá fái heimild til að takmarka gildistíma nýrra vegabréfa í tilvikum þar sem fyrri vegabréf hafa glatast. Ekki kemur þó fram að íslensk vegabréf hafi verið notuð við slíka brotastarfsemi.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab