248 milljóna sáttagreiðsla til Tækniskólans
Bæjarstjórn Hafnarfjarðarbæjar samþykkti í dag að greiða Skólastræti Tækniskólans ehf. 248 milljónir króna í sáttagreiðslu vegna vanefnda Hafnarfjarðarbæjar við afhendingu lóðar sem fyrirhuguð var undir skólann í tæka tíð.
Kom þetta fram á fundi bæjarstjórnar sem stendur nú yfir. Tillagan var samþykkt með atkvæðum tíu bæjarfulltrúa en einn sat hjá.
Skólastræti Tækniskólans ehf. var stofnað árið 2024 til að annast byggingu og rekstur fasteigna Tækniskólans samkvæmt samkomulagi ríkisins, Hafnarfjarðarbæjar og skólans.
Gerðu grein fyrir atkvæðum sínum
Valdimar Víðisson, bæjarfulltrúi Framsóknar, flutti bókun að atkvæðagreiðslu lokinni þar sem hann sagði greiðsluna eyða frekari fjárhagslegri og lagalegri ábyrgð Hafnarfjarðarbæjar.
Einar Geir Þorsteinsson, bæjarfulltrúi Miðflokksins, sat hjá við atkvæðagreiðsluna og flutti að sama skapi bókun þar sem hann gerði grein fyrir atkvæði Miðflokksins.
Sagði hann að samningsstaða bæjarins hefði orsakast af ákvörðunum sem teknar voru á árabilinu 2021–2024 þegar Miðflokkurinn átti engan fulltrúa í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.
Samkomulag náðist í samráði við stjórnvöld
Í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ segir að samkomulag hafi náðst, í samráði við stjórnvöld, um skiptingu kostnaðar sem undirbúningur uppbyggingar Tækniskólans við Flensborgarhöfn hefur haft í för með sér.
Þá segir að viðræðurnar hafi farið fram í nánu og góðu samstarfi þar sem báðir aðilar hafi lagt áherslu á að nálgast málið af heilindum og finna sanngjarna lausn á flókinni stöðu.
Aukinheldur segir að allir aðilar séu sammála um mikilvægi þess að áfram verði unnið að framtíðaruppbyggingu Tækniskólans á nýjum stað þannig að skólinn geti sinnt vaxandi þörf fyrir öflugt starfs- og tækninám á Íslandi.
Fréttin hefur verið uppfærð
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗