Settist klofvega yfir samstarfskonu
Atvikin urðu 11. febrúar 2022 þegar hópur starfsmanna flugfélags fór saman út að skemmta sér. Maðurinn og konan þekktust ekki þótt þau störfuðu hjá sama félagi. Mynd úr safni. Ljósmynd/Colourbox
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag karlmann í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að áreita samstarfskonu sína kynferðislega á skemmtistað í Reykjavík.
Konan bar fyrir dómi að maðurinn hefði sest klofvega yfir hana og í þeirri stöðu hefði maðurinn sagt „þú veist ég get gert allt sem ég vill við þig“, konan hváði á móti og maðurinn bætti við „þú veist ég gæti, þú veist ég gæti riðið þér ef ég vill það“.
Dómurinn taldi sannað að hann hefði látið slík ummæli falla og að orðbragðið hefði verið bæði kynferðislegt og ógnandi.
Manninum var gert að greiða konunni 500 þúsund krónur í miskabætur auk vaxta og tæpar 2,8 milljónir króna í sakarkostnað.
Atvikin urðu 11. febrúar 2022 þegar hópur starfsmanna flugfélags fór saman út að skemmta sér. Maðurinn og konan þekktust ekki þótt þau störfuðu hjá sama félagi.
Reyndi að kyssa hana
Konan sagði manninn hafa komið að sér þar sem hún sat á bekk, sest klofvega yfir hana og gripið í hönd hennar. Hann hefði fyrst sagt að hann gæti gert við hana hvað sem hann vildi og síðan látið ofangreind ummæli falla.
Konan sagðist hafa frosið við ummælin. Maðurinn hefði þá tekið báðum höndum um höfuð hennar og reynt að kyssa hana en hún náð að sveigja höfuðið frá.
Dómurinn taldi frásögn konunnar stöðuga, ýkjulausa og trúverðuga. Framburður vitna studdi frásögn hennar af því að maðurinn hefði haldið hendi hennar niðri og reynt að kyssa hana.
Dómurinn taldi einnig sannað að maðurinn hefði komið aftur skömmu síðar, sest við hlið konunnar og strokið henni um lærið utan klæða. Vitni að því atviki sagði hann hafa haldið áfram þótt konan bæði hann að hætta.
Sagðist ekkert muna
Maðurinn neitaði sök og sagðist ekkert muna eftir því sem gerðist á skemmtistaðnum vegna mikillar ölvunar. Hann þekkti þó sjálfan sig á upptöku úr öryggismyndavél staðarins þar sem sást þegar hann settist klofvega yfir konuna.
Eitt vitnanna sagði konuna hafa hlegið og sagt að allt væri í lagi þegar hún var spurð um samskipti þeirra. Dómurinn taldi þau viðbrögð engu breyta um niðurstöðuna og benti á að fyrstu viðbrögð við kynferðisofbeldi gætu verið ólík eftir aðstæðum og einstaklingum.
Konan hafði samband við mannauðsstjóra flugfélagsins næsta mánudag. Manninum var sagt upp störfum viku eftir atvikin og konan lagði fram kæru í mars sama ár.
Ríkissaksóknari greip tvisvar inn í
Lögregla hætti rannsókn málsins í febrúar 2023. Konan kærði ákvörðunina til ríkissaksóknara sem lagði fyrir lögreglu að hefja rannsókn að nýju. Með ákvörðuninni fylgdi myndskeið sem konan hafði tekið upp á síma sinn þegar hún fékk að skoða upptöku úr öryggismyndavél skemmtistaðarins.
Héraðssaksóknari felldi málið niður í febrúar 2025 þar sem gögnin voru ekki talin nægileg eða líkleg til sakfellis. Konan kærði þá ákvörðun einnig til ríkissaksóknara sem felldi hana úr gildi og lagði fyrir héraðssaksóknara að höfða málið. Ákæra var gefin út í maí á þessu ári.
Við ákvörðun refsingar leit dómurinn til þess að maðurinn hafði ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi og að rannsókn málsins og útgáfa ákæru hefðu dregist úr hófi án þess að honum yrði um kennt. Refsingin fellur niður að ári liðnu frá birtingu dómsins haldi hann almennt skilorð.
Konan fór fram á þrjár milljónir króna í miskabætur. Dómurinn leit til vottorða og vitnisburðar um áhrif brotsins á líðan hennar og ákvað bæturnar 500 þúsund krónur.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗