Hefur hafnað öllum tilboðum
Spænski knattspyrnuþjálfarinn Pep Guardiola hefur hafnað öllum tilboðum sem honum hafa borist að undanförnu, bæði frá Sádi-Arabíu og ítalska knattspyrnusambandinu.
Josep Maria Orobitg, umboðsmaður Guardiola, staðfesti í samtali við sádí-arabíska fjölmiðla að tilboð hefðu borist frá Sádi-Arabíu um að Guardiola tæki við félagsliði þar í landi eða landsliðinu.
„Okkur hafa borist tilboð frá Sádi-Arabíu í gegnum milligöngumenn undanfarna daga,“ sagði Orobitg.
Guardiola ákvað að taka sér frí frá þjálfun eftir rúmlega tíu ár hjá Manchester City.
Hann hafnaði einnig áhuga ítalska knattspyrnusambandsins á að fá hann til starfa. Ekki verður farið að ræða framtíð hans formlega fyrr en í upphafi næsta tímabils.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗