Flúðu skítabrælu suður fyrir land

Vestmannaeyjaskipin Vestmannaey VE og Bergey VE í höfn í Neskaupstað.

Vestmannaeyjaskipin Vestmannaey VE og Bergey VE í höfn í Neskaupstað. Ljósmynd/SVN/Guðlaugur Björn Birgisson

Allir þrír skipstjórar ísfisktogaranna sem landa í Neskaupstað í dag kvarta sáran undan veðurfarinu að undanförnu, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar.

Togararnir eru Vestmannaeyjaskipin Vestmannaey VE og Bergey VE auk Birtings NK sem landar í heimahöfn.

„Öll skipin hófu veiðar fyrir austan land en þurftu að flýja suður fyrir landið vegna skítabrælu. Þau enduðu síðan túrinn á austurmiðum,“ segir á vefnum.

Byrjuðu og enduðu á Gerpisflaki

Haft er eftir Agli Guðna Guðnasyni, skipstjóra á Vestmannaey, að veiðiferðin hafi verið heldur erfið.

„Við komum að landi með um 60 tonn og uppistaða aflans er þorskur. Túrinn hófst á Gerpisflakinu en síðan var flúið suður fyrir vegna óþverraveðurs og haldið á Ingólfshöfðann og Breiðamerkurdýpið,“ segir hann.

Síðan hafi verið siglt austur fyrir landið á ný þegar veðrið gekk niður og endað á Gerpisflakinu þar sem túrinn hófst.

„Við fengum einungis tvo þokkalega daga hvað veður varðar en helmingur tímans í túrnum fór í siglingu. Staðreyndin er sú að þetta er haustkropp,“ segir Egill Guðni og bætir við að það sé staða sem menn séu svo sem ekki óvanir á haustmánuðum.

Þreytandi túrar fylgja árstímanum

Ragnar Waage Pálmason, skipstjóri á Bergey, tekur undir þetta og segir dálítið þreytandi túra sem þessa fylgja árstímanum.

Bergey flúði veðrið líka suður fyrir en reyndi svo fyrir sér á Gerpistotu, Utanfótar og í Reyðarfjarðardýpi þegar komið var austur aftur.

„Aflinn var um 63 tonn,“ segir Ragnar.

Sama saga er svo höfð eftir Einari Ólafi Ágústssyni, skipstjóra á Birtingi.

Ýsan lætur enn bíða eftir sér

Hann segir að byrjað hafi verið á Glettingi en vegna skítaveðurs hafi verið flúið á Ingólfshöfðann. Þar hafi hins vegar verið lítið að hafa.

„Síðan var haldið austur fyrir aftur. Aflinn var 45 tonn en helmingur tímans fór í siglingar fram og til baka,“ segir Einar Ólafur og bætir við að aflinn hafi að mestu verið þorskur.

„Og enn bíðum við eftir ýsunni. Reyndir menn sögðu að ýsan kæmi þegar færi að grána í fjöll en hún lætur enn bíða eftir sér.“

内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab