Foreldrar slógust á barnamóti - „Svona hegðun á hvergi heima, hvað þá á viðburði fyrir börn“
Lögregla á Englandi óskar nú eftir vitnum að fjöldaslagsmálum sem brutust út á fótboltaleik í barnaflokki í Keynsham í sumar. Tveir enduðu á sjúkrahúsi eftir átökin.
Slagsmálin hófust eftir atvik inni á vellinum. Karlmaður á fertugsaldri og kona á fimmtugsaldri hlutu bæði áverka í andliti og voru flutt á sjúkrahús. Meiðslin voru þó ekki alvarleg.
Lögregla birti nýja tilkynningu vegna málsins í gær, tæpum fjórum mánuðum eftir atvikið. Þar kemur fram að rannsókn standi enn yfir en lögregla hefur meðal annars farið yfir upptökur úr öryggismyndavélum og rætt við vitni.
„Við skiljum að þetta atvik hafi valdið miklum áhyggjum meðal viðstaddra. Svona hegðun á hvergi heima, hvað þá á viðburði fyrir börn,“ sagði Simon Spencer, lögreglufulltrúi.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗