Ensk og spænsk stórlið vilja norska undrabarnið sem sló met Ödegaard

Fjöldi stórliða Evrópu hefur áhuga á Gabriel Rajkovic, 15 ára kantmanni Valerenga í Noregi. 

Rajkovic varð yngsti leikmaður í sögu norsku úrvalsdeildarinnar þegar hann lék sinn fyrsta leik í mars, 15 ára og 20 daga gamall. Skákaði hann þar Martin Ödegaard sem átti metið. 

Rajkovic hefur þá skorað þrjú mörk og lagt upp eitt í 17 deildarleikjum á tímabilinu.

Arsenal, Barcelona, Manchester United, Chelsea, Liverpool, Manchester City og Real Madrid eru meðal félaganna sem fylgjast með honum. 

Valerenga gæti farið fram á rúmlega 15 milljónir punda fyrir Rajkovic, sem yrði metfé fyrir leikmann úr norsku deildinni. Hann er samningsbundinn félaginu til ársloka 2028.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab