Allt sem þú gætir viljað vita um GTA VI

Grand Theft Auto VI kemur út á miðnætti á PlayStation 5 og Xbox Series X/S. Nú þegar er hægt að spila leikinn í Nýja-Sjálandi þar sem nú þegar er kominn fimmtudagur. Mikil eftirvænting hefur verið fyrir leiknum enda 13 ár síðan GTA V kom út og um tvö ár síðan við fengum að sjá fyrstu stikluna. Leikjagagnrýnendur stærstu fjölmiðla hafa í dag verið að birta gagnrýni sína á leikinn og má segja að leikurinn hljóti einróma lof. 

Ekki lesa lengra ef þú vilt ekkert vita um leikinn fyrir spilun

🚨FIRST LOOK at the GTA 6 Intro! #GTA6 | #GTAVI https://t.co/zodeHPrtxJ

— GTA 6 News (@GTA6NewsHub) November 18, 2026

Gagnrýnendur virðast vera á eitt sammála um að leikurinn sé meistaraverk sem standi undir öllum væntingum. Leikurinn gerist í hinu ímyndaða fylki Leonida, sem byggir á Flórída, en Vice City, sem sækir fyrirmynd sína til Miami, er hjarta leiksins. Í GTA VI er spilað sem parið Jason Duval og Lucia Caminos, sem flækjast inn í umfangsmikið glæpasamsæri eftir að það sem virðist einfalt rán fer hræðilega úrskeiðis. Stundum þurfa þau að berjast fyrir lífi sínu áður en þau geta farið að njóta velgengni í þessari hárbeittu ádeilu á Flórída og bandarískt samfélag. Pólitíska ádeilan mun þó vera öllu minni en oft áður, líklega til að leikurinn verði ekki fljótt úreltur. 

Jason og Lucia

Grand Theft Auto 6 segir sögu Jasons og Luciu í fimm köflum þar sem þau dragast inn í svakalegt samsæri sem teygir anga sína um allt Leonida. Allar ákvarðanir sem þau taka hafa miklar afleiðingar og er sagan full af óvæntum vendingum. 

Leikmenn fá tiltölulega fljótt fullt frelsi til að kanna Leonida og eru engar refsingar fyrir að fresta því að spila söguþráðinn. Nýjar aðferðir og hæfileikar opnast þó eftir því sem sögunni vindur fram. Ólíkt því sem áður var er ekki lengur hægt að stela bíl eins og ekkert sé alveg strax í byrjun. Því meira sem þú leysir af leiknum, því auðveldari verður allt slíkt. 

Nokkur munur er á því hversu lengi gagnrýnendur voru að klára söguþráðinn í leiknum, sumir eru að ná því á um 50 klukkutímum, aðrir nokkuð lengur. 

Ástarsambandið

Eins og áður segir er spilað sem Jason og Lucia, á ákveðnum köflum í söguþræðinum er bara hægt að spila sem annað hvort hann eða hún. Þegar lengra er komið í leikinn opnast svo á möguleikann á að skipta frjálst á milli þeirra. 

Samband þeirra er svo hægt að þróa á mismunandi vegu. Það getur verið rómantískt eða hægt að halda því á vinalegum nótum. Hvort sem þú gerir getur haft mikil áhrif á framvinduna sem þýðir að margir munu spila söguþráðinn aftur eða jafnvel nokkrum sinnum. Það eru einnig nokkrir mismunandi endar á söguþræðinum.

My first GTA 6 playthrough is going to be 100% loyal. No flirting at the strip club. No “just checking” the dating app. I’m not even looking at another NPC. CJ had six girlfriends in San Andreas and nobody said a word. Niko juggled dates between bowling calls from Roman. Michael’s marriage was a mess for an entire game. Lucia did time. Lucia robs stores with you. Lucia is not going to sigh and walk away like Amanda. I’ve seen what happens in this video. I’m not taking that risk on day one. Maybe day two. First run in Vice City: are you the loyal Jason or the one who gets found? (vid by @GTAmemesSOL ) https://t.co/GFF7xV4qfX

— Adrian Voss (@ArasakaDropout) November 16, 2026

Gagnrýnendur mæla með að nota fyrstu spilunina í að þróa ástarsambandið vel þeirra á milli. Lucia og Jason geta gert hversdagslega hluti saman, farið á stefnumót og annað, nefnir einn gagnrýnandi samsetningu á húsgagni úr flatri pakkningu sem mörg pör kannast við.

Svo bætist við að þau þróa með sér ákveðið mannorð í leiknum, þá eftir því hvernig er spilað. Þau geta verið flokkuð sem „atvinnumenn“, „óforbetranleg“ og fleira. 

Endalaust af smáatriðum

Helsta gagnrýnin sem hefur komið á leikinn er að hann keyrir á 30 römmum á sekúndu en ekki 60 eins og margir hafa vanist. Gagnrýnendur hafa ekki viljað láta það trufla sig og segjast hafa hætt að taka eftir því fljótt, það sé lítið gjald fyrir heim sem höktir ekki. Að öðru leyti sé grafíkin og spilunin framúrskarandi, sama með hljóðið og tónlistina. 

🚨First time driving in GTA 6 feels better then the sex This game is incredible. https://t.co/mKPc7Jf91U

— Krish (@Krish_nvm_Raw) November 18, 2026

Er nefnt að smáatriðin í aukapersónunum séu nánast ótrúleg þar sem hver einasta persóna hefur sitt eigið útlit, hreyfingar, klæðnað og segi mismunandi hluti eftir því hvort leikmaðurinn heilsar henni eða ögrar.

Rockstar hefur lagt gríðarlega vinnu í hvert einasta smáatriði og það sést sérstaklega vel á aukapersónunum.

Leonida mun vera mjög fjölbreyttur heimur, allt frá skærum ljósum Vice City á nóttunni til rólegri svæða The Keys og Mount Kalaga, með viðkomu í úthverfum Port Gellhorn og Ambrosia.

Þá eru allir staðir með eigið yfirbragð að innan, allt frá litlum sjúskuðum bensínsjoppum yfir í risastóra næturklúbba. 

Eins og áður er allt út í skopstælingum á þekktum vörumerkjum. Munurinn er núna að vökvi hreyfist í ílátum þegar þau eru borin eða drukkið úr þeim og bitför sjást á matnum þegar persónurnar borða.

Byggingar eru jafnframt hannaðar á mismunandi hátt, sem hefur áhrif á hvernig hægt er að athafna sig inni í þeim eða ræna þær. Það kemur í veg fyrir að leikmaðurinn geti alltaf beitt sömu aðferðunum.

Persónurnar svitna þegar þær æfa, hlaupa eða dvelja lengi í heitu umhverfi, til dæmis á næturklúbbi. Baugar myndast undir augum Jasons og Luciu ef þau sofa ekki nægilega mikið. Vöðvar þeirra verða sýnilegri eða rýrna eftir því hversu dugleg þau hafa verið að æfa. Úrvalið af fatnaði er gríðarlegt, allt frá heilgöllum, bolum og buxum til skófatnaðar og fylgihluta.

Þá er ofbeldið líka mjög gróft og rétt að minna á að einstaklingar sem hafa ekki aldur til eiga ekki að spila þennan leik. 

GTA-leikirnir eru þekktir fyrir eftirminnilegar útvarpsstöðvar og GTA 6 býður upp á margar stöðum. Svo er núna hægt kaupa heyrnartól fyrir persónurnar svo þær geti haldið áfram að hlusta á tónlist á göngu eða í líkamsrækt.

Aksturinn

Akstur er einn af hornsteinum leiksins enda stendur GTA fyrir „stórfelldan bílaþjófnað“. 

Í byrjuninni þarf yfirleitt að stela bíl af götunni eða brjótast hljóðlega inn í hann með sérstöku verkfæri til að opna læsinguna. Einnig er hægt að brjóta rúðuna til að komast hraðar inn og tengja síðan fram hjá kveikjulásnum til að ræsa bílinn, það felur í sér stutta þraut sem þarf að leysa. 

Eftir því sem leiknum vindur fram fást fleiri verkfæri sem gera kleift að stela betri bílum og draga úr þörfinni fyrir að tengja fram hjá kveikjulásnum.

Í símanum er app sem gerir kleift að skanna ökutæki og fá upplýsingar um það, meðal annars hraða, aksturseiginleika og verðmæti. Appið sýnir einnig hvort hægt sé að stela ökutækinu á þeirri stundu og hversu erfitt verði að halda því eftir þjófnaðinn. Hvert ökutæki hefur sína eigin eiginleika og aksturstilfinningu.

Here’s what driving a fast car is like in GTA 6 Driving is far heavier than GTA 5, Cars have real weight but they are never too heavy like in GTA 4. It’s a very happy medium that feels just right https://t.co/ZZD3YmRO4b

— Synth Potato🥔 (@SynthPotato) November 18, 2026

Í Leonida eru göturnar mun þrengri en í GTA V sem þýðir að lögreglueftirfarir geta orðið mjög strautlegar. 

Í bílum og öðrum farartækum er svo hægt að geyma vopn og töskur með stolnum verðmætum. Stór skotvopn geta vakið athygli fólks ef þau eru borin á almannafæri og því getur verið gott að geyma þau í bílnum. Töskur með þýfi glatast að eilífu ef persónan deyr, en ef þær eru geymdar í bíl getur verið mögulegt að endurheimta þær síðar, jafnvel þótt lögreglan hafi lagt hald á ökutækið.

Veður og undirlag hafa líka mikil áhrif á aksturseiginleika. Bílar renna frekar til í rigningu eða á malarvegum ef þeir eru ekki ætlaðir fyrir slíkar aðstæður.

Svo þarf núna að fylla eldsneyti á bíla, gagnrýnendur eru missammála um hversu pirrandi það er. Bátar gegna stærra hlutverki en nokkru sinni fyrr, þá getur verið erfitt að stýra þyrlu og öðrum flugfarartækjum. 

Vopnin

Stjórnun vopna og búnaðar meira máli en í fyrri GTA-leikjum. Hægt er að vera með á sér tvö stór skotvopn og tvö minni vopn í einu. Minni vopnin eru falin, en þau stærri hanga á bakinu eða eru borin í höndunum og því sýnileg öðrum. 

Eins og áður er nóg af skotvopnaverslunum til að verða sér út um vopn en nú þarf að vanda sig við að velja réttan búnað fyrir hvert verkefni. 

Úrvalið er gríðarlegt og er nú hægt að sérsníða vopnin með ýmsum hætti, bæði útlit og aukabúnað, svo sem sjónaukum, hljóðdeyfum og fleiru.

Weapon Modification in #GTAVI is bonkers. I've got 31 guns. The one pistol I show in this weapons mod video has 14 points of customization, with a total of 37 different options available across all categories. This is for one gun. https://t.co/esHhgu5I5j

— Blaine Smith (@GHBSmith) November 18, 2026

Þá er einnig nóg af sprengiefnum. Límsprengjur geta verið gagnlegar þegar ræna á peningaskáp en ekki tekst að finna númerasamsetninguna.

Í handalögmálum þarf að kýla, víkja sér undan höggum og hreyfa sig rétt til að sigra andstæðinginn. Stærri óvinir þola mun fleiri högg áður en þeir falla.

Löggan

Eins og í öllum GTA-leikjum er óhjákvæmilegt að lenda í eftirför lögreglu. 

Ein stjarna þýðir að einn eða tveir lögreglubílar reyna að elta þig. Við sex stjörnur reynir lögreglan um allt kortið að stöðva þig með öllum tiltækum ráðum. Nú er lögreglan komin með rafbyssur þannig að ef þú fremur vægan glæp þá byrja þær á að stuða þig. 

Hægt er að nota höfuðföt, grímur og gleraugu til að fela auðkenni en yfirleitt þarf að breyta útlitinu alveg til að losna endanlega undan lögreglunni.

Á meðan lögreglan rannsakar glæpavettvang leitar hún að einstaklingum sem passa við lýsingarnar. Ef þú breytir engu og sést á svæðinu þá fer löggan aftur að elta þig. 

Rán og peningar

Utan aðalverkefnanna í söguþræðinum er hægt að fremja rán af ýmsum stærðargráðum, allt frá smærri verslunarránum til stórra bankarána.

Hægt er að nálgast ránin með margvíslegum hætti. Það er hægt að ryðjast inn með byssurnar á lofti, það er líka hægt að reyna að stela án þess að nokkur taki eftir því og svo er stundum hægt að greiða fyrir upplýsingar um hvenær best sé að láta til skarar skríða.

Hægt er að gera öryggiskerfi óvirk, eyðileggja upptökur úr eftirlitsmyndavélum og jafnvel ræna viðskiptavini sem liggja í skjóli á meðan ránið stendur yfir.

Svo er einnig hægt að eignast fíkniefni og skartgripi. Reiðufé er hægt að leggja inn í hraðbanka en með hitt þarf að leita til óprúttinna aðila til að koma í verð. Getur það verið ákveðin spenna að koma peningum og stolnum verðmætum í öruggt skjól áður en maður tapar þeim. Svo fylgist þú með peningunum þínum í gegnum heimabankann í leiknum. 

Opinn heimur fullur af ævintýrum

Ýmis verkefni og hliðarverkefni uppgötvast með því að ferðast um Leonida. Því borgar sig að heimsækja svæði sem maður hefur ekki áður skoðað eða aðeins ekið í gegnum. Söguþráðurinn kynnir þig fyrir ýmsu en sumt þarf að hafa upp á, til dæmis torfæruhjólreiðar, kappakstur, fiskveiðar, skotveiðar og golf. 

XQC SPENT HIS TIME IN GTA VI REPAIRING A HOUSE INSTEAD OF PLAYING THE ACTUAL GAME. 💀 Apparently, you can manually replace the roof, paint walls, and even screw in individual bolts, because Rockstar went all in on the details. Meanwhile, everyone else is waiting for missions, car chases and chaos. Dad is already running to buy GTA VI just to finally finish renovating the house. 😭🏠

— Filosof (@fxlxsxf) November 18, 2026

Mest af þessu er hægt að gera saman sem par þannig að Jason og Lucia geta notað þetta til að styrkja þeirra samband. Hafa nokkrir á samfélagsmiðlum lýst yfir áhyggjum um að makar muni sýna leikjamakanum sínum mun meiri ástríðu og athygli en nokkurn tíma sínum eigin maka, mögulega verður þetta þó til að einhverjir læri eitthvað. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab