Dreginn fyrir dóm og rekinn úr starfi eftir starfsmannadjamm
Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 18. nóvember 2026 15:05
Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Maður hefur verið dæmdur í skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að áreita samstarfskonu sína kynferðislega. Atvikið átti sér stað á skemmtistað í miðborg Reykjavíkur á föstudagskvöldi í febrúar árið 2022. Maðurinn og konan fóru bæði þangað ásamt hópi samstarfsfólks en allt fólkið starfaði hjá flugfélagi en eftir atvikið var manninum sagt upp störfum.
Maðurinn var yfirmaður á skrifstofu félagsins en samkvæmt heimildum Vísis er um að ræða flugfélagið Play, sem síðar varð gjaldþrota, en samkvæmt sömu heimildum starfaði konan þar sem flugþjónn.
Samkvæmt ákæru gekk maðurinn að konunni þar sem hún sat á bekk á skemmtistaðnum, settist klofvega yfir hana, greip í vinstri hönd hennar, hélt henni fastri, viðhafði við hana ógnandi og kynferðislegt orðbragð og reyndi að kyssa hana á munninn og skömmu síðar settist hann aftur við hlið hennar og strauk læri hennar utanklæða.
Fram kemur að maðurinn og konan hafi ekki þekkst fyrir. Eftir atvikið tilkynnti konan það til mannauðsstjóra og á endanum var manninum sagt upp störfum. Konan kærði síðan manninn til lögreglu en í skýrslutöku sagði hún að maðurinn hefði sagt við hana:
„Þú veist ég get gert allt sem ég vill við þig“, og síðan bætt við „þú veist ég gæti, þú veist ég gæti riðið þér ef ég vill það“.
Sagðist konan hafa náð að sveigja sér undan þegar maðurinn hafi reynt að kyssa hana. Hann hafi farið eftir að hún kallaði á vinkonu sína en komið aftur og strokið læri hennar utanklæða en hún þá slegið á hönd hans og sagt honum að hætta.
Ölvun
Við yfirheyrslu hjá lögreglu bar maðurinn við minnisleysi sökum mikillar ölvunar.
Konan leitaði til vinnustaðasálfræðings og Stígamóta og greindi þar frá ótta og vanlíðan.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu felldi rannsókn málsins niður þar sem það þótti ekki líklegt til sakfellingar en Ríkissaksóknari sneri þeirri ákvörðun við og lagði fyrir lögregluna að taka málið aftur til rannsóknar. Í millitíðinni hafði konan farið á skemmtistaðinn og fengið þar að taka upp á farsíma sinn myndskeið úr öryggismyndavél þar sem sjá mátti atvikið og afhenti hún lögreglu afrit af upptökunni.
Þegar manninum var sýnd upptakan viðurkenndi hann að þar mætti sjá hann setjast ofan á konuna en hann vildi meina að á upptökunni mætti ekki sjá hana streitast á móti.
Héraðssakóknari felldi síðan málið niður en Ríkissaksóknari ógilti ákvörðunina og lagði fyrir fyrrnefnda embættið að ákæra manninn.
Sekur
Fyrir dómi neitaði maðurinn sök og bar enn á ný við minnisleysi sökum ölvunar.
Framburður konunnar var á sömu lund fyrir dómi og hjá lögreglu og nokkur þeirra vitna sem komu fyrir dóminn tóku undir með honum.
Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness segir að framburður konunnar hafi verið stöðugur og ýkjulaus og sé trúverðugur í alla staði. Framburður vitna og upptakan skjóti frekari stoðum undir framburð hennar. Það sé ekki vafamál að ummælin sem maðurinn hafi viðhaft við konuna hafi verið kynferðislegt og ógnandi.
Dómurinn telur því sannað að maðurinn hafi brotið kynferðislega gegn konunni og sé sekur um þá háttsemi sem honum sé gefin að sök í ákæru.
Í ljósi þess að maðurinn hafii ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi og að rannsókn málsins og útgáfa ákæru hafi dregist úr hófi fram þyki við hæfi að dæma manninn í 30 daga skilorðsbundið fangelsi. Tekið er einnig fram að þótt ofurölvun mannsins gæti eftir atvikum skýrt að einhverju leyti framferði hans í garð konunnar yrði háttsemi hans aldrei réttlætt að lögum.
Auk skilorðsbundins fangelsis var maðurinn dæmdur til að greiða konunni 500.000 krónur í miskabætur auk dráttarvaxta.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗