Höfðar mál vegna gervigreindarauglýsingar

LeBron James í leik með liði sínu Philadelphia 76ers.

LeBron James í leik með liði sínu Philadelphia 76ers. AFP/Mitchell Leff

Körfuboltastjarnan LeBron James hefur höfðað mál gegn íþróttaveðmálaappinu Bron fyrir að nota gælunafn hans og gervigreindarmynd af honum í auglýsingu án leyfis.

The Guardian greinir frá.

Í kærunni, sem lögð var fram í New York, segir að fyrirtækið hafi vísvitandi skapað þá röngu mynd að James tengdist appinu og mælti með því. Markmiðið hafi verið að fjölga niðurhölum og áskriftum.

James krefst þess að fyrirtækinu verði bannað að nota nafn hans og ímynd og að það greiði skaðabætur fyrir notkunina.

Í auglýsingunni var gervigreindarmynd af James í búningsklefa, með húðflúrin sín og í treyju númer 23, þar sem hann skoðaði appið. Auglýsingin var fjarlægð eftir að lögmenn hans sendu fyrirtækinu kröfubréf, en hafði þá þegar verið endurbirt og fengið um milljón áhorf.

Appið tekur ekki við beinum veðmálum en býður meðal annars upp á skráningu veðmála og samanburð á veðstuðlum gegn áskriftargjaldi.

James, sem er stigahæsti leikmaður NBA-deildarinnar frá upphafi, telur notkun myndarinnar sérstaklega alvarlega þar sem hún sýndi hann skoða veðmál á NBA-leikmenn. Slíkt geti grafið undan trausti á heilindum deildarinnar.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab