Minnast Guðjóns í næsta heimaleik
Enska knattspyrnufélagið Stoke City mun minnast Guðjóns Þórðarsonar í heimaleik sínum gegn Birmingham City í B-deildinni á laugardag með lófataki í eina mínútu.
Guðjón stýrði Stoke í 154 leikjum frá nóvember 1999 til maí 2002 þar sem hann var með 50 prósent sigurhlutfall.
Tími Guðjóns hjá félaginu var viðburðaríkur og þrátt fyrir ýmsar áskoranir tókst Guðjóni að koma Stoke upp í næstefstu deild árið 2002. Ekki leið þó á löngu þar til hann var látinn fara.
Áður en yfir lauk hafði Stoke bikarkeppni neðri deildar liða eftir sigur á Bristol City í úrslitaleik á gamla Wembley-leikvanginum.
Leikurinn var sá síðasti sem fór fram á þessum sögufræga velli og vakti mikla athygli hér á landi. Stór hluti þjóðarinnar fylgdist með þegar Stoke tryggði sér titilinn.
Guðjón hefur sjálfur lýst þessum sigri sem stærstu stund ferils síns.
On Saturday, we honour two Potters who provided lasting memories for Stokies of their respective eras. A minute's applause will be held prior to kick-off in memory of Peter Dobing and Gudjon Thordarson. https://t.co/uXFRfaLjwn
— Stoke City FC (@stokecity) November 17, 2026
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
