„Verðmætasköpunarhaustið“ lætur bíða eftir sér

Fjöldi starfa hefur haldist svipaður síðasta árið en hefur færst frá almennum vinnumarkaði til hins opinbera. Samsett mynd/mbl.is/Eggert/Seðlabankinn.

Störf á almennum vinnumarkaði voru tæplega 2.000 færri í september en á sama tíma í fyrra. Á sama tímabili fjölgaði störfum í opinberri þjónustu um nærri 2.700.

Raunar hefur störfum fækkað nær samfellt á almennum markaði frá árinu 2022 en engin viðspyrna hefur orðið í þeim efnum eftir að Covid tímabilinu lauk.

Þetta kemur fram í riti Peningamála Seðlabankans. Karen Aslaug Vignisdóttir, aðalhagfræðingur Seðlabankans sagði á fundi Seðlabankans að fækkunin hafi verið mest í sérhæfðri þjónustu, ferðaþjónustu og byggingariðnaði.

3,9% fjölgun í opinbera geiranum 

Rúmu ári eftir að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra boðaði „verðmætasköpunarhaust“ sýna tölur Seðlabankans að störfum á almennum vinnumarkaði fækkaði um 1,2% milli ára í september á sama tíma og þeim fjölgaði um 3,9% í opinberri þjónustu.

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab