Þorgerður: „Æi, elsku kallinn“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. mbl.is/Karítas

„Æi, elsku kallinn,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, kallaði fram í „útúrsnúningar og þvæla“ undir lok orðaskipta þeirra um efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar á Alþingi í dag.

Forseti Alþingis bað í kjölfarið um hljóð í salnum og minnti þingmenn og ráðherra á að virða ræðutímann.

Sigmundur Davíð hafði í óundirbúnum fyrirspurnatíma spurt hvort ríkisstjórnin hygðist endurskoða efnahagsstefnu sína í ljósi reynslu síðustu tveggja ára.

Þorgerður Katrín sagði það koma almenningi illa ef stjórnin gæfi eftir í viðleitni sinni til að reka ríkissjóð með afgangi. Ná þyrfti tökum á ríkisrekstrinum til að styðja Seðlabankann í baráttunni við verðbólgu og skapa svigrúm til vaxtalækkana.

„Nei, við ætlum ekki að breyta í þann kúrs sem stjórnarandstaðan vill, þ.e. að snarauka ríkisútgjöld eða lækka skatta,“ svaraði Þorgerður Katrín. Stóraukin útgjöld og skattalækkanir væru „eitruð blanda“.

Sigmundur Davíð mótmælti því að stjórnarandstaðan hefði talað fyrir auknum ríkisútgjöldum og sakaði ráðherrann um að gera andstæðingum sínum upp skoðanir.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins. mbl.is/Eyþór

Óttast að hagkerfið fari í frost

Sigmundur Davíð benti á að stýrivextir stæðu í 8% og atvinnuleysi færi vaxandi. Ráðherrar hefðu ítrekað látið í veðri vaka að vextir kynnu að lækka við næstu vaxtaákvörðun. Nú gæti hins vegar farið svo að bæði vextir og verðbólga lækkuðu á næsta ári vegna þess hve mjög drægi úr umsvifum í hagkerfinu.

„Er það aðferðin sem þessi ríkisstjórn ætlaði að beita til að ná niður vöxtum og verðbólgu, að setja einfaldlega allt hagkerfið í frost?“ spurði hann.

Að mati Sigmundar Davíðs renndi ný spá Seðlabankans stoðum undir það mat að óraunhæft væri að reka ríkissjóð hallalausan á næsta ári.

Hann spurði hvort stjórnin ætlaði engu að síður að halda óbreyttri stefnu og vísaði til úrsagnar þingmanns úr Viðreisn, sem hann rakti til óánægju með skatta- og efnahagsstefnu stjórnarinnar.

Þorgerður Katrín benti á móti á að fjárfesting atvinnuveganna hefði ekki verið meiri í hálfa öld ef frá væru talin árin rétt fyrir bankahrun. Þá sagði hún hagvísa benda til þess að verðbólga væri á niðurleið.

Deildu um hvað skatttekjurnar sýndu

Þorgerður Katrín vísaði til þess að skatttekjur ríkisins væru á bilinu 23 til 23,8% af landsframleiðslu samkvæmt fjárlögum áranna 2025 og 2026 og fjárlagafrumvarpinu fyrir 2027. Í tíð ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs hefði hlutfallið farið úr 27,1% í 29,2%.

Sigmundur Davíð sagði auknar skatttekjur á sínum tíma til marks um árangur í efnahagsstjórn. Tekjur ríkisins hefðu aukist án þess að skattar hefðu verið hækkaðir og á sama tíma hefðu lífskjör batnað.

Núverandi ríkisstjórn hefði hins vegar bæði aukið útgjöld og hækkað skatta þótt mikill útgjaldavöxtur í tíð fyrri stjórnar hefði gefið henni færi á að spara.

Ver aukin framlög til vegaviðhalds

Í lokasvari sínu sagði Þorgerður Katrín kjósendur hafa kallað eftir breytingum. Ríkisstjórnin væri „í miðri á“ og ætlaði að ljúka þeim verkefnum sem hún hefði tekið að sér.

Hún tók vegaviðhald sem dæmi um útgjöld sem ríkisstjórnin hefði aukið. Framlögin hefðu farið úr 12 milljörðum króna í tíð síðustu ríkisstjórnar í 17 milljarða og stefnt væri að því að hækka þau í 23 milljarða.

Þá vísaði hún til uppbyggingar hjúkrunarheimila sem ætti að auðvelda útskrift sjúklinga af Landspítala sem biðu eftir hjúkrunarrými.

„Þetta eru bara nokkur af dæmunum sem við stöndum frammi fyrir. Við erum í þessum verkefnum, í þessum málefnum fyrir þjóðina okkar og fyrir almenning,“ sagði ráðherra.

Hún bætti við að stjórnarandstaðan gæti gert eitthvað annað. Þá kallaði Sigmundur Davíð fram í sem fyrr segir. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab