„Við ætlum hvergi að hvika frá hallalausum fjárlögum“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. mbl.is/Eyþór

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, spurði Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á Alþingi í dag hvort ríkisstjórnin hygðist bregðast við nýrri hagspá Seðlabankans með skattahækkunum eða auknu aðhaldi.

Þorgerður sagði þingið fá uppfærðar forsendur fjárlagafrumvarpsins við aðra umræðu um það. „Við ætlum hvergi að hvika frá hallalausum fjárlögum,“ sagði hún.

Guðrún benti á að í fjárlagafrumvarpinu væri gert ráð fyrir um fimm milljarða króna afgangi á ríkissjóði á næsta ári en Seðlabankinn spáði 17 milljarða króna halla. Þar munaði um 22 milljörðum króna. Þá miðaði ríkisstjórnin við 1,8% hagvöxt á næsta ári en Seðlabankinn spáði 1,2% vexti.

Þorgerður sagði stærstu tíðindi dagsins þau að stýrivextir héldust óbreyttir. Þeir væru einu prósentustigi lægri en þegar ríkisstjórnin tók við og Seðlabankinn spáði því að verðbólga minnkaði um helming á næsta ári. Það væri bæði heimilum og fyrirtækjum í hag að ríkisstjórnin héldi fast við markmið sitt um hallalaus fjárlög.

Tvær krónur sparist á móti hverri krónu í auknar tekjur

Guðrún vísaði í óundirbúnum fyrirspurnatíma til viðtals við Þorgerði í Kastljósi í gær. Þar hefði ráðherrann sagt að eitt prósentustig í vöxtum skipti fjölskyldu með 50 milljóna króna húsnæðislán máli sem næmi hálfri milljón króna á ári.

Ráðherrann vissi því vel hvað væri í húfi fyrir heimilin nú þegar stýrivextir væru 8% og verðbólga tæp 6%.

Guðrún sagði Sjálfstæðisflokkinn reiðubúinn til samstarfs um úrbætur. Hún vildi vita hvort ríkisstjórnin ætlaði að endurskoða frumvarpið og draga úr útgjöldum eða láta heimili og fyrirtæki bera kostnaðinn með hærri sköttum og gjöldum.

Þorgerður sagði að aðhaldsaðgerðir í frumvarpinu fyrir árið 2027 næmu 2,5% af heildarútgjöldum ríkisins. Það væri hæsta hlutfallið á tímabilinu frá 2017 til 2027. Ríkisstjórnin sparaði tvær krónur á móti hverri krónu sem hún aflaði í auknar tekjur.

Þá sagði Þorgerður að skatttekjur ríkisins yrðu undir 24% af landsframleiðslu á næsta ári. Að farsóttarárunum undanskildum hefði það síðast gerst árið 2017, þegar fjármálaráðherra var einnig úr röðum Viðreisnar.

Hún ítrekaði jafnframt það mat sitt að Daði Már Kristófersson væri einn besti fjármálaráðherra síðari tíma.

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins.

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Eyþór

Sagði ráðherra svara gagnrýni með því að benda á aðra

Í fyrra svari sínu hafði Þorgerður einnig vikið að embættisferli Guðrúnar og sagt núverandi dómsmálaráðherra hafa áorkað meiru á innan við tveimur árum en fjórir dómsmálaráðherrar Sjálfstæðisflokksins á tíu árum.

Guðrún, sem var ein þeirra fjögurra, sagði ráðherrann snúa út úr spurningunni og gerði lítið úr árangri núverandi dómsmálaráðherra, einkum í útlendingamálum.

Guðrún sagði núverandi ríkisstjórn bera ábyrgð á fjárlögum ársins 2026 og þeirri stöðu sem upp væri komin. Hún gagnrýndi ráðherrann fyrir að benda á fyrri ríkisstjórnir og spurði aftur í hverju þær erfiðu ákvarðanir fælust sem Þorgerður hefði talað um í Kastljósi.

Þorgerður hafnaði því í lokasvari sínu að fylgja tillögum Sjálfstæðisflokksins. Þær fælu að hennar sögn í sér bæði verulega aukin útgjöld og skattalækkanir. Slíkt væri „eitruð blanda“ sem minnti á stefnu Liz Truss, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands.

„Við ætlum ekki að bjóða íslenskum almenningi eða þinginu upp á svona dómadagsdellu.“

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab